Hörð samkeppni um markvarðastöðuna

Ståle Solbakken.

Ståle Solbakken. AFP/Buda Mendes

Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari karlalandsliðs Noregs í fótbolta, hefur skipt leikjum á milli markvarðanna Ørjan Nyland og Egil Selvik í síðustu landsleikjum.

Ákvörðun hans um að velja Nyland gegn Danmörku í 3:2 sigri í Parken í gærkvöldi kom mörgum á óvart, enda hafði Selvik staðið sig vel í sigrinum á Wales í síðustu viku.

Þegar NRK spurði hvort hann óttaðist að ákvörðunin myndi hafa neikvæð áhrif á Selvik og hvatningu (n. motivasjonen) hans að spila fyrir Noreg eftir að hafa verið tekinn úr liðinu brást Solbakken ókvæða við.

„Nei, ertu bilaður? Guð minn góður!“ svaraði hann og bætti við að Selvik hefði aldrei haft meira gaman af því að spila fyrir Noreg en nú.

„Hann hefur spilað þrjá af stærstu leikjum lífs síns gegn Frakklandi, Portúgal og Wales. Hvernig ætti hann ekki að vera áfram gíraður í framhaldinu ?“ spurði Solbakken.

Hann segir enga ólgu vera innan leikmannahópsins vegna markvarðastöðunnar, þótt hann viðurkenni að Selvik hafi orðið vonsvikinn þegar honum var tilkynnt um ákvörðunina.

„Egil hefur líklega haldið að hann myndi spila og varð því hissa og vonsvikinn. En hann þarf að styðja við bakið á Ørjan, rétt eins og Ørjan styður við bakið á honum. Það er ekki meiri dramatík í þessu,“ sagði Solbakken.

Noregur tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar með sigrinum á Danmörku og mætir þar Frakklandi, Englandi eða Þýskalandi í mars.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab