Draumur að spila á heimavelli á EM
Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska landsliðsins í fótbolta, segir drauminn um að spila á EM 2028 á heimavelli í Dublin hafa orðið raunhæfari eftir að liðið tryggði sér annað sæti í riðli sínum í B-deild Þjóðadeildarinnar með 3:0 sigri á Kosovo í gærkvöldi.
Írland tryggði sér þar með sæti í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM 6. desember.
Liðið sleppur því við nokkur sterk lið í drættinum og eykur möguleika sína á að komast á stórmótið á heimavelli, en Írar halda lokakeppnina ásamt Englandi, Skotlandi og Wales. Heimir segir það hafa verið eitt af meginmarkmiðunum með þátttökunni í Þjóðadeildinni.
„Ef við komumst á EM á eigin verðleikum spilum við á Aviva-vellinum (heimavelli Írlands). Við erum erfiðir viðureignar þar og vonandi fáum við að spila á heimavelli á EM, fyrir framan frábæra stuðningsmenn okkar. Það yrði stórkostlegt,“ sagði Heimir eftir sigurinn.
Hann var ánægður með frammistöðuna gegn Kosovo og sagði leikmennina hafa sýnt sömu orku, ákefð og karakter og í tapinu gegn Austurríki í síðustu viku. Þá telur hann samheldni hópsins hafa aukist til muna eftir erfiða haustglugga.
Fara í umspil um sæti í A-deild
Sigurinn í gær tryggði Írum sæti í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar í mars. Mótherjinn verður annaðhvort Króatía, Serbía, Danmörk eða Wales. Heimir segir leiki gegn sterkum þjóðum mikilvæga fyrir þróun liðsins og til að greina veikleika þess.
„Ég er nokkuð viss um að eftir eitt eða tvö ár, þegar þetta lið hefur náð árangri, lítum við til baka og segjum að þetta hafi verið vendipunkturinn fyrir okkur,“ sagði Heimir.
Hann segir stöðugleika í leikmannavali og leikaðferðum jafnframt vera farinn að skila sér. Markmiðið sé að byggja upp lið sem sé erfitt að mæta og þar sem allir leikmenn geti sinnt sínu hlutverki af kostgæfni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗