James Blunt heitir nú í höfuðið á flugfélagi
Breski söngvarinn James Blunt lofaði að breyta nafni sínu í Ryan Air ef nýjasta plata hans, Airplane Mode, kæmist á topp breska vinsældalistans.
Platan fór á toppinn og Blunt virðist hafa staðið við orð sín, þótt eitt nafn hafi bæst við.
Á mánudaginn birti söngvarinn skjáskot á Instagram af skjali þar sem fram kemur að hann hafi breytt nafni sínu úr James Hillier Blount í Ryan Bel Air.
„Þetta kostaði mig 53,05 pund,“ skrifaði hann við færsluna. Það jafngildir um níu þúsund krónum.
Gaf aðdáendum annað tækifæri
Þetta er í annað sinn sem Blunt lætur nafnbreytingu ráðast af gengi plötu. Fyrir tveimur árum hét hann því að taka upp nafnið Blunty McBluntface ef plata hans næði efsta sæti. Það gekk ekki eftir og í myndskeiði sem hann birti 11. nóvember sagðist hann ætla að gefa aðdáendum sínum annað tækifæri.
Að þessu sinni sótti hann nafnið til lággjaldaflugfélagsins Ryanair, sem svaraði honum á X. „Þá myndi fólk að minnsta kosti vita hver þú ert.“
Blunt þakkaði öllum sem höfðu keypt plötuna eða hlustað á hana í streymi í samtali við Official Charts Company um helgina. Hann var heldur ekki í vafa um hvernig hann ætlaði að fagna.
„Ég ætla að verða alveg pissfullur,“ sagði söngvarinn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗