Með starfsfólk frá 25 þjóðlöndum
María Cecelia Sigurðsson og Reynaldo Curato Renegado taka við viðurkenningum úr hendi Guðmundar Kristjánssonar forstjóra Brims.. Ljósmynd/Brim
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu vekur Brim þessa dagana með ýmsum hætti athygli á mikilvægi tungumálsins í íslensku samfélagi.
Á vef Brims kemur fram að hjá fyrirtækinu starfi fólk frá 25 þjóðlöndum sem talar ólík móðurmál.
„Í áraraðir hefur félagið staðið fyrir íslenskukennslu fyrir starfsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli og hefur því frumkvæði verið vel tekið af starfsfólki,“ segir þar.
Fram kemur að reynsla og þekking af því starfi hafi meðal annars nýst við mótun stafrænna lausna í íslenskukennslu sem hugbúnaðarfyrirtækið Bara tala hefur þróað til að mæta þörfum atvinnulífsins og hjálpa starfsfólki að læra og nota íslensku í tengslum við störf sín.
Notkun appsins verðlaunuð
Í gær, þriðjudag, veitti Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóri Brims, starfsfólki og íslenskunemum viðurkenningar.
„María Cecelia Sigurðsson hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur í sept-nóv áskorun Brims og Bara tala en hún hefur lokið um 170 klukkustundum í Bara tala-appinu en það samsvarar nærri mánaðarvinnu í átta tíma á hverjum virkum degi.“
Þá var því fagnað að Reynaldo Curato Renegado fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt eftir rúmlega 20 ára búsetu á Íslandi. Fram kemur að lengst af þeim tíma hafi hann starfað hjá Brimi.
„Hann fékk blómvönd í íslensku fánalitunum í tilefni af ríkisborgararéttinum. Þess má geta að 12 ára dóttir hans fékk einnig íslenskan ríkisborgararétt.“
Íslenska málnefndin verðlaunaði Brim
Þá er Vladimir Funcic, yfirverkstjóri í vinnslunni Norðurgarði, sagður hafa tekið við viðurkenningu úr hendi Guðmundar Kristjánssonar forstjóra Brims, en félagið hlaut viðurkenninguna fyrr í haust frá Íslensku málnefndinni fyrir frumkvæði og framtak í íslenskukennslu fyrir starfsfólk.
„Funcic tók við viðurkenningunni fyrir hönd 14 annarra starfsmanna sem ásamt honum hafa lokið a.m.k. 100 klukkustundum í Bara tala appinu og eru því verðugir fulltrúar starfsfólks Brims.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗