Chelsea áfram áhugasamt þrátt fyrir höfnunina í sumar
Chelsea hefur enn áhuga á Jose Morante, 19 ára kantmanni Real Betis, þrátt fyrir að hann hafi hafnað því að ganga í raðir félagsins í sumar.
Þetta kemur fram í spænskum miðlum í dag. Morante vakti mikla athygli á EM U-19 ára landsliða í sumar, þar sem hann varð Evrópumeistari með Spáni, skoraði fjögur mörk og var valinn í lið mótsins.
Chelsea hafði samband við fulltrúa hans en Morante kaus að vera áfram hjá Betis. Hann skrifaði í kjölfarið undir samning til ársins 2030 með 25 milljóna punda klásúlu.
Morante hefur síðan fengið nokkur tækifæri með aðalliði Betis. Kom hann við sögu í Meistaradeildinni og skoraði í sínum fyrsta leik í La Liga.
Chelsea fylgist áfram með þróun hans og gæti gert aðra tilraun til að fá hann til félagsins í janúar eða næsta sumar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗