Vegurinn um Fjarðarheiði í slæmu ástandi - Krefjast úrbóta en að þær verði ekki of miklar

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 10:30

Seyðisfjörður. Mynd/Wikipedia

Byggðaráð Múlaþings og heimastjórn Seyðisfjarðar krefjast þess að gerðar verði úrbætur á veginum um Fjarðarheiði en segja ástand vegarins sýna fram á nauðsyn þess að grafin verði göng í stað vegarins. Vísa byggðaráð og heimastjórn til minnisblaðs Vegagerðarinnar þar sem því er lýst að vegurinn sé í slæmu ástandi og þörf sé á margvíslegum úrbótum sem kosta muni að minnsta kosti um 2,5 milljarða króna. Byggðaráð leggur hins vegar áherslu á að ekki verði ráðist í umfangsmeiri og þar með kostnaðarsamari úrbætur en þetta þar sem það muni seinka því að Fjarðarheiðargöng verði að veruleika.

Minnisblað Vegagerðarinnar um veginn var tekið fyrir fyrr í mánuðinum á fundi heimastjórnar Seyðisfjarðar og því síðan vísað til byggðaráðs Múlaþings sem tók það fyrir á fundi sínum í gær. Í minnisblaðinu kemur fram að vegurinn um Fjarðarheiði sé hæsti fjallvegur á stofnvegakerfi landsins. Minnt er á að vegurinn sé eina vegtenging Seyðisfjarðar og sé sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu. Hann sé brattur beggja vegna heiðarinnar (með brekkum með um og yfir 10 prósent halla).

Á undanförnum árum hafi ekki verið lagt í mikla vinnu við skoðun og greiningu á endurbótum á veginum þar sem fyrir hafi legið að jarðgöng myndu leysa hann af hólmi innan tíðar. Þær upplýsingar sem settar séu fram í minnisblaðinu byggi því á takmörkuðum grunni. Þó liggi fyrir eldri umferðaröyggisúttekt sem horft hafi verið til við þær framkvæmdir sem þó hafi verið farið í. 

Eins og kunnugt er hafa hins vegar forsendur fyrir Fjarðarheiðargöngum breyst eftir að fallið var frá þeim í samgönguáætlun sem gildir frá þessu ári til ársins 2040.

Mis

Í minnisblaði Vegargerðinnar segir að samkvæmt hinni eldri fyrirliggjandi umferðarúttekt muni aðgerðir til að bæta umferðaröryggi á veginum kosta um 500 milljónir króna. Þessar aðgerðir felist í meginatriðum í því að í að setja niður vegrið og minnka bratta vegfláa og lagfæringum á öryggissvæði.

Segir enn fremur að vegurinn um Fjarðarheiði sé missiginn, með hjólförum, kantskemmdum, burði sé víða ábótavant og slitlag lélegt. Styrking og endurbætur miðað við núverandi vegbreidd sé áætlað að kosti um 1.5-2 milljarða króna en sementsfesta þurfi mestan hluta af veginum.

Vegagerðin segir einnig að vegurinn sé 6,5-7 metra breiður og samræmist ekki þeim kröfum sem um hann séu gerðar, en vegur af þessari gerð eigi að vera 9 metra breiður samkvæmt vegaskrá. Kostnaður við slíka framkvæmd sé gróflega áætlaður um 6-7 milljarðar króna. Minni breikkun eða í 8 metra muni auka öryggi verulega en talið sé að kostnaður við slíka breikkun og endurbyggingu sé gróflega reiknaður 4-5 milljarðar. 

Ljóst sé að núverandi vegstæði muni ekki fullnægja kröfum um langhalla og verði að skoða það sérstaklega komi til framkvæmda. Niðurstaða Vegagerðinnar er því sú að umferðaröryggisúrbætur og styrking og endurbætur miðað við núverandi vegbreidd kosti 2-2,5 milljarða. Endurbygging vegarins miðað við 8 metra vegbreidd kosti um 4-5 milljarða en endurbygging miðað við 9 metra vegbreidd kosti 6-7 milljarða.

Velja lágmarkið

Í bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar um minnisblaðið segir að samkvæmt umferðaöryggisáætlun stjórnvalda skuli fara fram heildstætt umferðaröryggismat allra stofnvega á gildistíma áætlunarinnar og hljóti áhersla yfirvalda að vera á úrbætur á Fjarðarheiði þar sem Fjarðarheiðargöngum hafi verið slegið á frest um ótilgreindan tíma. Heimastjórn krefst þess að sett verði sérstök fjárveiting í styrkingu og endurbætur vegarins. Mikil umferð sé um veginn og minnt sé á mikilvægi öruggs aðgengis að Seyðisfjarðarhöfn sem sé ytri landamæri Schengen-svæðisins.

Byggðaráð Múlaþings tekur undir bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar. Byggðaráð segir í bókun, í fundargerð fundar þess sem fram fór í gær, að ástand vegarins um Fjarðarheiði sé óviðunandi. Vegurinn sé aðkomuleið að alþjóðlegri ferjuhöfn og landamærastöð á ytri mörkum Schengen-svæðisins. Öruggar samgöngur um heiðina séu því ekki aðeins hagsmunamál íbúa sveitarfélagsins, heldur allrar þjóðarinnar.

Byggðaráð ítrekar fyrri afstöðu sveitarfélagsins um að Fjarðarheiðargöng verði sett í forgang. Göngin séu fullhönnuð og tilbúin til útboðs. Sú forgangsröðun sé í samræmi við Svæðisskipulag Austurlands og sameiginlega afstöðu sveitarfélaga á Austurlandi. Fjarðarheiðargöng séu eina varanlega lausnin á samgöngum við Seyðisfjörð. Engin endurbygging vegarins breyti hæð heiðarinnar, veðurhæð eða snjóþyngslum.

Á meðan beðið sé ganga sé gríðarlega mikilvægt að tryggð verði fjárveiting til styrkingar og öryggisúrbóta á núverandi vegi, svo hann verði í öruggu og viðunandi ástandi. Vegagerðin meti kostnað við slíkar úrbætur á 2-2,5 milljarða króna. Byggðaráð vari hins vegar eindregið við því að ráðist verði í endurbyggingu vegarins fyrir 6-7 milljarða króna sem staðgengil jarðganga. Slík endurbygging megi ekki verða rök fyrir því að fresta Fjarðarheiðargöngum enn frekar. Þeim fjármunum væri betur varið sem framlagi til að hefja gangagerð.

Sveitarstjóra er loks falið að senda bókun byggðaráðs til innviðaráðuneytisins, Vegagerðarinnar og þingmanna Norðausturkjördæmis

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab