Hver verður illmennið í næstu Bond-mynd? - Þessi 10 eru til í verkefnið

Eftir að aðdáendur og netverjar hafa velt því fyrir sér í langan tíma hver tæki við keflinu af Daniel Craig sem nýr Bond, þrátt fyrir að valið hafi aðeins tekið þrjá daga, er komið að næstu vangaveltum: Hver mun leika illmennið eða illmennin?

Sjá einnig: Jeff Bezos uppljóstrar áhugaverðri staðreynd um valið á Robert Pattinson sem Bond

Mörg illmenni síðustu 25 mynda um njósnara hennar hátignar hafa verið mjög eftirminnileg, en hér má rifja upp endalok þeirra:

 

Henry Cavill (42)

Cavill sem þekktur er fyrir hlutverk Súperman hefur áður greint frá því að hafa farið í prufur fyrir hlutverk 007, en tapað fyrir Daniel Craig. Gæti hann snúið aftur í prufur, en í þetta sinn sem illmenni?

Í viðtali við tímaritið Heat á síðasta ári sagði Cavill að hann hefði „ekki hafnað hlutverkinu tímasetningin var bara ekki rétt“. Þótt hann hafi nefnt að hann gæti verið „fullgamall fyrir Bond“ hefur hann ekki útilokað möguleikann á að leika næsta illmenni.

„Mig langaði samt mjög til að leika illmenni í Bond-mynd. Ef um væri að ræða réttu persónuna, þá held ég að það væri heillandi verkefni að takast á við.“

Henry Cavill. Mynd: Getty.

Brad Pitt (62)

Í kjölfar tilkynningar Amazon sagðist Pitt „gjarnan vilja taka að sér“ hlutverk illmennis í Bond-mynd.

„Robert... veistu hvað, ég væri til í það,“ sagði Pitt í viðtali við Extra TV. „Ég meina Javier Bardem gerði þetta svo vel. Það er stórt skarð að fylla, en ég væri til í þetta.“

Brad Pitt. Mynd: Getty.

Daniel Radcliffe (37)

Orðrómur um að Radcliffe hefði áhuga á hlutverkinu hefur gengið í mörg ár, en heimildarmaður sagði tímaritinu Closer í sumar:

„Tekið er alvarlega í áhuga hans, ekki síst vegna þess að hann á í nánu og langvarandi sambandi við einn af nýju framleiðendunum, David Heyman, sem hann vann með við gerð Harry Potter-myndanna,“ sagði heimildarmaðurinn.

Daniel Rathcliffe. Mynd: Getty.

Saoirse Ronan (32)

„Ég stend fast við það að mig langar virkilega að leika illmenni í Bond-mynd, ég mun segja það aftur og aftur,“ sagði Ronan við Vanity Fair árið 2014.

„Í hvert sinn sem ég hef fengið tækifæri til að leika einhvern sem er dálítið vondur, þá hef ég einfaldlega elskað það. Og mér finnst að það væri virkilega gaman að gera það aftur.“

Saoirse Ronan.

Barry Keoghan (34)

Þótt hann hafi áður sagt að hann „uppfylli ekki skilyrðin til að leika Bond“, útilokar Keoghan ekki að leika illmenni.

„Ég myndi frekar vilja koma inn og leika illmennið. Að vera maðurinn sem stríðir Bond, það á betur við mig,“ sagði hann við Radio Times.

Í viðtali við Extra TV í mars 2026 bætti hann við: „Ég held ekki að ég myndi leika James Bond. Þetta er hlutverk sem krefst, þú veist, ákveðinna þátta. Ég held ekki að ég myndi leika James Bond sjálfan, en ég væri til í að koma inn og leika illmennið. Bara svona til að nefna það.“

Barry Keoghan. Mynd: Getty.

Cillian Murphy (50)

Veðbankar telja Murphy líklegan í hlutverk illmennis í Bond-mynd.

Hann á ekki langt að sækja reynslu af því að leika illmenni; hann hefur túlkað illar persónur á borð við Dr. Jonathan Crane, betur þekktan sem Scarecrow, í Batman Begins, og Jackson Rippner í Red Eye.

Cillian Murphy. Mynd: Getty.

Elizabeth Hurley (61)

Hurley hefur áður sagt að það væri „draumur“ hennar að leika illmenni í Bond-mynd.

„Draumur minn er að leika illmenni í Bond-mynd, hvort sem það er í þröngum samfestingi eða ekki. Mér þótti mjög gaman af Bond-myndunum með Daniel Craig, en öll illmennin voru karlmenn,“ sagði hún við The Guardian árið 2024.

Elizabeth Hurley. Mynd: Getty.

Idris Elba (54)

Í mörg ár var Idris Elba talinn líklegur til að taka við hlutverki 007, svo margir aðdáendur urðu hissa þegar nafn hans vantaði á listann yfir þá sem orðaðir voru við að leysa Daniel Craig af hólmi.

Það þýðir þó ekki að hann geti ekki leikið illmennið, enda hafa veðbankar ekki útilokað hann.

Idris Elba. Mynd: Getty.

James Norton (41)

„Mig langar mikið til að leika illmenni í Bond-mynd,“ sagði Norton við Gentlemen's Journal.

James Norton. Mynd: Getty.

Alex Kingston (63)

Kingston hefur barist fyrir því að fá hlutverkið allt frá árinu 2021 og lýst yfir löngun til að leika „illmenni sem finnst James Bond alls ekki vera kynþokkafullur“.

Hún sagði ennfremur við Radio Times: „Mig langar virkilega til að leika illmennið, það er að segja konuna sem er illmennið. Það eru aldrei konur í hlutverki illmenna, ég á þá við aðalillmennið, það hefur aldrei verið kona í því hlutverki.“

Alex Kingston. Mynd: Getty.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab