Fyrsta konan í þjálfarateymi karlaliðs Manchester United

Manchester United er að ráða Silviu Tuya, 46 ára styrktar- og þolþjálfara, og verður hún fyrsta konan í sögu félagsins til að starfa í þjálfarateymi aðalliðs karla.

Tuya kemur til félagsins með Mauricio Pochettino, sem hefur störf hjá United í dag. Hún hefur starfað með honum hjá bandaríska landsliðinu frá því í október 2024 og varð þá einnig fyrsta konan í þjálfarateymi bandaríska karlalandsliðsins.

Tuya er með doktorsgráðu í íþróttavísindum og hefur meðal annars kennt við Barcelona-háskóla og starfað hjá kvennaliði Levante á Spáni.

Hún mun vinna náið með Sebastiano Pochettino, syni knattspyrnustjórans, við líkamlega þjálfun leikmanna United.

Pochettino tekur við af Michael Carrick eftir afar erfiða byrjun liðsins á tímabilinu. Fyrsti leikur hans verður gegn Liverpool á Anfield á sunnudaginn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab