Bilaðar bjöllur á bráðamóttökunni
Sjúkrakallskerfið á bráðamóttöku Landspítalans er einnig kallað „bjöllukerfið“. Það hefur verið bilað í um þrjár vikur. Starfsfólk þarf að líta oftar inn til sjúklinga á meðan beðið er eftir nýju kerfi. Samsett mynd: Ljósmynd/Aðsend/mbl.is/Kristinn Magnússon
Sjúkrakallskerfið, sem sjúklingar á bráðamóttöku Landspítalans nota til að kalla eftir aðstoð, hefur verið bilað í um þrjár vikur. Kerfið er úrelt og ekki hægt að gera við það. Á meðan beðið er eftir nýju kerfi hefur starfsfólk þurft að grípa til sérstakra ráðstafana, meðal annars með því að líta oftar inn til sjúklinga.
Andri Ólafsson, samskiptafulltrúi Landspítalans, segir í samtali við mbl.is að strax hafi verið hafist handa við að panta nýtt kerfi og undirbúa uppsetningu þess. Gert sé ráð fyrir að það verði komið upp innan nokkurra vikna.
Veikustu sjúklingarnir fá forgang
Sérstakir bjölluhnappar hafa einnig verið útvegaðir til bráðabirgða.
„Við gátum útvegað hnappa frá sama aðila og hefur þjónustað sjúkrakallskerfið sem nú er bilað. Þeim hnöppum er forgangsraðað inn á stofur þar sem veikustu sjúklingarnir liggja,“ segir Andri.
Andri Ólafsson, samskiptafulltrúi Landspítalans, segir að engin alvarleg atvik hafi komið upp vegna bilunarinnar. mbl.is/Aðsend
Engin alvarleg atvik komið upp
Starfsfólk hefur jafnframt þurft að laga verklag sitt að biluninni.
„Þetta er auðvitað ekki ákjósanleg staða og starfsfólk leggur það á sig næstu vikur að huga sérstaklega að innlitum til sjúklinga enda öryggi algjört lykilatriði. Það hafa blessunarlega ekki komið upp nein alvarleg atvik þessu tengt,“ segir hann.
Sjúkrakallskerfið á bráðamóttöku Landspítalans er úrelt og ekki hægt að gera við það. Þörfin fyrir endurnýjun hafði legið fyrir um nokkurt skeið. mbl.is/Kristinn Magnússon
Lengi legið fyrir að endurnýja þyrfti kerfið
Spurður hvers vegna sjúkrakallskerfið á bráðamóttökunni hafi ekki verið endurnýjað áður en það bilaði segir Andri að þörfin fyrir endurnýjun hafi verið þekkt um nokkurt skeið.
„Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að uppfæra þurfi sjúkrakallskerfið á bráðamóttöku. Það er því miður þannig að það eru mörg kerfi, mörg tæki og alls kyns búnaður á Landspítala sem þarf að uppfæra á hverju ári. Fjármunum er hins vegar naumt skammtað, eins og stjórnendur hafa vakið athygli á,“ segir Andri.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

