Yfirlýsing Seðlabankans frekar mild
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir yfirlýsingu Seðlabankans um ákvörðun peningastefnunefndar bankans um að halda vöxtum óbreyttum heldur milda.
Þá segir hún ákvörðunina vera í takt við spár Landsbankans.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda vöxtum bankans óbreyttum í morgun. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%.
Æskilegt að fara að lækka vexti
„Þau draga fram ýmsa þætti sem verða til þess að verðbólga ætti að hjaðna en hagvaxtarhorfur hafa versnað,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Að auki vísar hún í Peningamál, ársfjórðungslegt rit Seðlabankans þar sem gerð er grein fyrir horfum í peningamálum, og bendir á að þar dragi bankinn hagvaxtarspá sína fyrir næsta ár verulega niður.
„Ég held að það hljóti að vera áhyggjuefni eða ýti kannski undir þá skoðun sem við höfum haft að hagkerfið hafi kólnað mjög mikið og þá sé æskilegt að fara að lækka vexti áður en of langt um líður,“ segir Una.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗