Vilhjálmur reiður vegna stöðu Kristjáns – „Girðið ykkur í brók og komið þessu fólki til hjálpar“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 09:15

Vilhjálmur Birgisson. Mynd: DV/Skjáskot RÚV

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gagnrýnir Reykjavíkurborg harðlega vegna stöðu íbúa í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða, þar sem lokað hefur verið fyrir rafmagn og vatn.

Hann segir óásættanlegt að fólk sé skilið eftir í kuldanum án þess að búið sé að tryggja því annan samastað.

Tilefni gagnrýninnar er frétt RÚV í gær þar sem rætt var við íbúa í hjólhýsabyggðinni sem segist hafa verið að frjósa eftir að lokað var fyrir rafmagn. Maðurinn, Kristján Tryggvi Ragnarsson, er nýbúinn í krabbameinsmeðferð og þarf, að sögn Vilhjálms, á hvíld og endurheimt að halda.

Hann hefur búið í hjólhýsi frá árinu 2017 og benti hann á það í viðtalinu að hitastigið í hjólhýsi hans eina nótt í vikunni hafi farið í mínus tvær gráður.

„Ég var frosinn í gær og í morgun,“ sagði Kristján.

Vilhjálmur deilir fréttinni á Facebook og spyr hvernig slíkt geti gerst í íslensku velferðarsamfélagi.

„Þetta eru samlandar okkar. Hví í ósköpunum var ekki búið að finna stað fyrir fólkið áður en lokað var fyrir rafmagn og vatn?“

„Svona gerum við ekki“

Vilhjálmur beinir því næst orðum sínum sérstaklega til forystufólks Reykjavíkurborgar og krefst tafarlausra aðgerða.

„Ég verð að segja þetta við forystufólk Reykjavíkurborgar. Girðið ykkur í brók og komið þessu fólki til hjálpar. Finnið í samráði við íbúana stað þar sem þeir geta búið við öryggi.“

Hann segir að á meðan unnið sé að framtíðarlausn verði að tryggja íbúunum aðgang að rafmagni og vatni.

„Að skilja fólk eftir í kuldanum án rafmagns og vatns á meðan beðið er eftir lausn er óásættanlegt. Svona gerum við ekki.“

Mannfyrirlitning

Færsla Vilhjálms hefur vakið hörð viðbrögð og taka fjölmargir undir gagnrýni hans í athugasemdum. „Hjartanlega sammála þér. Ég bý rétt hjá og hefi einungis heyrt jákvætt um íbúana,“ segir til dæmis Anna Kristjánsdóttir.

„Hvaða helvítis mannfyrirlitning er þetta? Opnið fyrir rafmagn og vatn strax og finnið fólkinu mannsæmandi húsaskjól. Borgaryfirvöld geta ekki skýlt sér á bak við reglugerðir og skrifborðskjaftæði á meðan fólk frýs. Þeir sem bera ábyrgð á þessari smán eiga að girða sig í brók eða víkja,“ segir í annarri athugasemd.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab