Anne Hathaway kemur fyrir í heimildarmynd um Klikkaða kúkarann

Leikkonan Anne Hathaway birtist óvænt í heimildarmyndinni The Mad Pooper (Klikkaði kúkarinn)  á sjónvarpsstöðinni TLC, ekki sem leikari, heldur sem mögulegur grunaður aðili í máli sem snýst um kúkara sem gerir íbúum lífið leitt.

The Mad Pooper er tveggja klukkustunda löng heimildarmynd um raunverulegan glæp, sem kafar ofan í dularfullt mál frá árinu 2017 sem vakti mikla athygli á netinu en hefur aldrei verið upplýst.

Myndin verður frumsýnd í þessari viku, fimmtudaginn 19. nóvember. Hún fylgir hópi fólks, þar á meðal áhugamannarannsóknarmönnum, blaðamönnum og fyrrverandi lögreglumönnum, sem reyna að bera kennsl á dularfulla konu sem skokkaði um daglega en skildi ítrekað eftir saur á lóðum íbúðarhúsa í Colorado Springs.

Málið er enn ekki til lykta leitt.

Í einum hluta þáttarins skoðar vitni röð ljósmynda af fólki sem gæti hafa verið að verki,  fólki sem líkist hinum óþekkta hlaupara, og bregður honum verulega þegar hann kemur auga á mynd af Óskarsverðlaunaleikkonunni Hathaway.

„Hún er ekki grunaður aðili,“ útskýrir framleiðandi og tekur fram að teymið hafi viljað kanna hvort „líkamsgerð hennar og andlitsdrættir“ svipuðu til hlauparans sem um ræðir.

Ljósmynd af Hathaway virðist hafa verið notuð sem viðmið, til að sjá hvort vitnið gæti þekkt almenna andlitsdrætti og líkamsbyggingu hlauparans.

Fyrr í myndbrotinu sýna framleiðendur honum konu sem einhver hafði talið hugsanlegan grunaðan aðila. Hann hafnar henni alfarið og segir ákveðið: „Nei, alls ekki.“

Vitnið segir: „Hárið er rétt, andlitið er rétt,“ á meðan það skoðar aðra ljósmynd. Einhver utan myndar segir þá við hann: „Sú sem er í miðjunni er Óskarsverðlaunahafinn Anne Hathaway.“

Vitnið hlær, en hann hafði einmitt tengt Hathaway við leitina að skokkaranum. Fljótt var ljóst að Hathaway gat ekki átt í hlut og engar af hinum ljósmyndunum leiddu til neins. Þegar spurt var hvort einhver kvennanna gæti verið sú sem leitað var að, gat vitnið ekki bent á neina þeirra með vissu.

 

Hvað gerðist í máli klikkaða kúkarans?

Málið um klikkaða kúkarann (e. „Mad Pooper) á rætur sínar að rekja til ársins 2017.

Cathy Budde, íbúi í Colorado Springs, greindi frá því að óþekkt kona, sem var á hlaupum, hefði ítrekað skitið fyrir utan heimili fjölskyldu hennar. Börn hennar komu auga á konuna þar sem hún sat á hækjum sér, sem varð til þess að Budde átti orðastað við hana.

Að sögn Budde svaraði hlaupakonan: „Já, afsakið,“ en hélt samt áfram að koma aftur, um það bil einu sinni í viku. Budde tókst einnig að ná mynd af konunni.

Hafa einhvern tíma verið borin kennsl á kúkarann?

Lögreglan í Colorado Springs rannsakaði atvikin sem mögulegan sóðaskap á almannafæri og blygðunarsemisbrot.

Ekki voru borin kennsl á konuna þrátt fyrir að málið hafi vakið athygli víða um Bandaríkin. Klósettpappírsframleiðandinn Charmin bauðst til að gefa konunni ársbirgðir af klósettpappír ef hún gæfisig fram.

Lögmaðurinn Jeremy Loew í Colorado Springs, sem kemur fram í heimildarmyndinni, segir að fyrningarfrestur væri liðinn á hugsanlegum ákærum vegna atvikanna. Heimildarmyndin skoðar málið með frásögnum sjónarvotta og nýjum rannsóknarsjónarhornum, samkvæmt lýsingu á heimildarmyndinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab