Gæti fengið fangelsisdóm fyrir að lemja stuðningsmann í miðjum leik

Hiram Boateng, 30 ára miðjumaður enska félagsins York City, gæti átt yfir höfði sér þunga refsingu, jafnvel fangelsisdóm, en hann hefur verið ákærður fyrir að slá stuðningsmann í leik gegn Rochdale í apríl.

Boateng mætti fyrir dóm í Manchester á mánudag og neitaði sök. Hann er ákærður fyrir ógnandi hegðun sem getur varðað allt að sex mánaða fangelsi.

Atvikið átti sér stað í hreint ótrúlegum leik í lokaumferð ensku utandeildarinnar. Rochdale komst yfir á 95. mínútu og stuðningsmenn liðsins þustu inn á völlinn í þeirri trú að liðið hefði tryggt sér meistaratitilinn.

York jafnaði hins vegar á 103. mínútu og tryggði sér titilinn og sæti í ensku D-deildinni. Stuðningsmenn ruddust aftur inn á völlinn og í látunum virtist Boateng slá einn þeirra í andlitið.

Myndband af atvikinu sýnir jafnframt að stuðningsmaðurinn virðist hafa lagt hendur á Boateng áður en leikmaðurinn brást við.

York City hefur lýst yfir fullum stuðningi við Boateng en réttarhöldin eiga að hefjast í júní á næsta ári.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab