Telur að United eigi að skoða Englendingana í Sádí
Paul Ince, fyrrverandi leikmaður Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, telur félagið þurfa að fá til sín öflugan markaskorara.
frekar til Ollie Watkins eða Ivan Toney en Victor Osimhen. United hafi lengi átt erfitt með að finna áreiðanlegan framherja og Ince segir liðið þurfa mann sem geti skorað 20 til 25 mörk á tímabili.
Aðalframherji United Benjamin Sesko hefur lítið spilað vegna meiðsla og Ince bendir á að ekki United hafi skapað mörg færi á tímabilinu án þess að nýta þau nægilega vel.
Hann segir Watkins og Toney báða geta verið skynsamlega kosti, þótt þeir leiki nú í Sádi-Arabíu.
„Að mínu mati eru tveir leikmenn sem þið getið farið og fengið. Fáið Ivan Toney eða Ollie Watkins. Báðir hafa sannað sig í ensku úrvalsdeildinni.
Ég veit að þeir spila í Sádi-Arabíu fyrir gríðarlega háar fjárhæðir, en ef þið eruð að leita að framherjum sem hafa reynslu og hafa sannað sig í úrvalsdeildinni, þá skuluð þið fá Watkins eða Toney
Hvort það geti gerst í janúar veit ég ekki. En miðað við hvernig Manchester United er að verjast og fá á sig mörk þarf liðið að skora fleiri mörk en andstæðingurinn," sagði Ince.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
