Beint: Ásgeir, Þórarinn og Karen fara yfir stöðuna
Ásgeir Jónsson, Þórarinn G. Pétursson og Karen Áslaug Vignisdóttir gera grein fyrir ákvörðuninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Verðbólga mældist 5,9% í síðasta mánuði og þó að verðbólguvæntingar hafi lækkað eftir að sátt náðist á vinnumarkaði er óvissa um verðbólguhorfur enn töluverð og ekki hægt að útiloka að afleidd áhrif af kostnaðarhækkunum eigi enn eftir að koma fram í verðlag.
Þá er ljóst að hagvaxtarhorfur hafa farið versnandi, dregið hefur úr vexti innlendrar eftirspurnar og blikur eru á lofti á húsnæðismarkaðinum.
Þau Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur bankans, fara yfir þessa stöðu og efni nýrrar útgáfu ritsins Peningamála klukkan 9:30.
Beint streymi frá fundinum:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗