Jákvætt en hefði viljað sjá vextina síga niður
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir jákvætt að vextir Seðlabankans haldist óbreyttir.
Hann segir þó að tækifæri hafi verið til að slaka á vaxtaumhverfinu.
„Byggingamarkaðurinn er að botnfrjósa“
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%.
„Maður hefði nú viljað fara að sjá þetta síga aðeins niður, þó það hefði ekki verið nema um 0,25 punkta miðað við þá stöðu sem er uppi,“ segir Vilhjálmur aðspurður.
„Byggingamarkaðurinn er að botnfrjósa, ef þannig má að orði komast. Það er að hægjast verulega á öllu, atvinnuleysi er að aukast og svo framvegis,“ segir hann.
Áhyggjur af næstu verðbólgumælingu
Vilhjálmur segist vonast til þess að fara að sjá lækkanir en kveðst hafa áhyggjur af næstu verðbólgumælingu Hagstofunnar.
„Það er stór liður að detta út frá árinu áður þannig að það kæmi mér ekki á óvart að við myndum sjá óvænta tölu sem myndi gera það að verkum að verðbólgan myndi stíga upp um næstu mánaðarmót,“ segir hann.
Vísar hann til þess að vísitala neysluverðs hafi lækkað um 0,48 prósentustig fyrir ári síðan og kemur sú tala því ekki inn í reikning næstu verðbólgumælingar.
„Síðan hef ég trú á því að hún eigi að hafa alla burði til þess að geta hjaðnað hratt og vel.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗