„Farið að klæja síðustu þrjár eða fjórar vikurnar“

Jökull Elísabetarson.

Jökull Elísabetarson. Ljósmynd/Egill Bjarni

Jökull Elísabetarson var á dögunum ráðinn þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Hann tekur við liðinu af Ólafi Inga Skúlasyni, sem lét af störfum að loknu nýliðnu tímabili.

Jökull, sem er fertugur, þekkir vel til í Smáranum en hann lék með Breiðabliki á árunum 2010 til 2014 og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2010. Þá þjálfaði hann einnig Augnablik, venslalið Breiðabliks, á árunum 2017 til 2021.

Þetta er fyrsta þjálfarastarf Jökuls síðan hann var látinn fara frá Stjörnunni í byrjun júní. Hann var aðalþjálfari liðsins í þrjú ár en hafði áður starfað sem aðstoðarþjálfari.

Spennandi og krefjandi umhverfi

Nýliðið tímabil var afar skemmtilegt í Bestu deild karla og mikið var skorað af mörkum. Jökull er spenntur fyrir því að snúa aftur á hliðarlínuna og segir pressuna sem fylgir starfinu aðeins gera það skemmtilegra.

Hvernig er að vera þjálfari í svona deild?

„Það er alltaf mjög skemmtilegt. Mig var farið að klæja síðustu þrjár eða fjórar vikurnar. Mig langaði út á völlinn. Ég er mjög spenntur að byrja og það gefur aukalega mikið að fara inn í svona spennandi og krefjandi umhverfi,“ sagði Jökull í samtali við mbl.is.

Hann hélt áfram:

„Ég veit að stuðningsmenn ætlast til mikils af liðinu, okkur og félaginu. Það er spennandi og skemmtilegt að vera hluti af þessu. Það hefur líka verið mikil umfjöllun um deildina og það er pressa. Það er bara skemmtilegt, þannig á það að vera.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab