Vill nánari pólitísk og hernaðarleg tengsl

Erlent | AFP | 18.11.2026 | 8:54

Pútín og Xi áður en fundur þeirra hófst í morgun.

Pútín og Xi áður en fundur þeirra hófst í morgun. AFP/Sergei Bobylyov

Xi Jinping, forseti Kína, hvatti til nánari pólitískra og hernaðarlegra tengsla milli Kína og Rússlands þegar hann hitti Vladímír Pútín Rússlandsforseta í Shenzhen í morgun, að sögn ríkisfjölmiðla.

Xi sagði að „löndin tvö ættu að nýta sér þau kerfi sem til staðar eru fyrir samskipti milli ríkisstjórna, löggjafarþinga, herja og stjórnmálaflokka landanna tveggja og tryggja að sú samstaða sem þjóðhöfðingjar landanna hafa náð komist í framkvæmd með árangursríkum hætti“, samkvæmt samantekt sem kínverska ríkisfréttastofan Xinhua birti.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab