United reyndi við heimsmeistara - Töldu hann nota sig

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 09:00

Didier Deschamps. Mynd DV/KSJ

Manchester United hafði samband við Didier Deschamps, fyrrverandi landsliðsþjálfara Frakklands, áður en Mauricio Pochettino var ráðinn knattspyrnustjóri. Talksport greinir frá þessu.

Viðræðurnar urðu skammvinnar þar sem forráðamenn United grunaði að Deschamps væri að nota áhuga félagsins til að styrkja samningsstöðu sína gagnvart öðrum félögum.

Deschamps, sem gerði Frakka að heimsmeisturum árið 2018, hafði einnig fengið tilboð frá Al Ahli í Sádi-Arabíu upp á um 25 milljónir punda fyrir þriggja ára samning.

United skoðaði fleiri kosti, þar á meðal Antonio Conte og Eddie Howe, auk þess sem Julian Nagelsmann kom til greina.

Pochettino varð á endanum fyrir valinu og tók við af Michael Carrick eftir afar erfiða byrjun United á tímabilinu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab