Stýrivextir standa í stað

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 08:31

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Mynd: Eyþór Árnason

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8,00%. Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að allir nefndarmenn hafi stutt þessa ákvörðun.

Verðbólga mældist 5,9% í október og hafði aukist frá því í sumar. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist stöðug í liðlega 4%. Alþjóðlegt eldsneytisverð hefur haldist hátt. Á móti vegur að dregið hefur enn frekar úr vexti innlendrar eftirspurnar og hagvaxtarhorfur hafa versnað sem ætti að stuðla að hjöðnun verðbólgu á komandi misserum. 

Nýbirt spá Seðlabankans gerir því ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári líkt og spáð var í ágúst. Vísbendingar eru um að afleidd áhrif hækkunar eldsneytisverðs hafi verið minni en upphaflega var óttast. Verðbólguvæntingar hafa lækkað og sátt náðist á vinnumarkaði fyrr í haust um að kjarasamningum yrði ekki sagt upp.

Verðbólga er þó enn of mikil og verðbólguvæntingar eru yfir markmiði. Óvissa um verðbólguhorfur er töluverð, ekki síst vegna alþjóðlegrar verðlagsþróunar. Þá er ekki hægt að útiloka að afleidd áhrif mikilla kostnaðarhækkana eigi enn eftir að koma fram í verðlagi. 

Peningastefnunefnd telur því rétt að halda vöxtum óbreyttum og viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab