83 stig frá Grimes og Doncic komu Lakers yfir línuna
Los Angeles Lakers vann 118:114-sigur á Charlotte Hornets í NBA-deildinni í körfubolta í nótt eftir framlengdan leik.
Quentin Grimes og Luka Doncic drógu vagninn fyrir heimamenn sem náðu að innbyrða sigur að lokum. Grimes fór hamförum og skoraði 47 stig, tók 6 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.
Luka Doncic skoraði 36 stig, tók einnig 6 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Næsti maður í stigaskori hjá Lakers var Colin Sexton með 10.
Brandon Miller skoraði 28 fyrir Hornets og Naz Reid 23 og tók 11 fráköst.
Meistarar New York Knicks unnu 111:102-útisigur á Toronto Raptors. Jalen Brunson fór fyrir Knicks með 31 stig og Karl Anthony Towns var nálægt þrefaldri tvennu. Hann skoraði 16 stig, tók 16 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
Brice Sensabaugh skoraði 40 fyrir Utah Jazz og Keyonte George 30 þegar liðið burstaði Los Angeles Clippers 132:107 á útivelli. Brook Loopez var stigahæstur heimamanna með 23.
Öll úrslit næturinnar:
San Antonio Spurs - Detroit Pistons 93:105
Minnesota Timberwolves - Portland Trail Blazers 106:105
Toronto Raptors - New York Knicks 102:111
Los Angeles Clippers - Utah Jazz 107:132
Los Angeles Lakers - Charlotte Hornets 118:114
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗