Aðsend grein: Nýr Landspítali í Reykjavík og Stóri gröftur í Boston

Albert Þór Jónsson

Albert Þór Jónsson

Aðsend grein úr Morgunblaðinu

Nýi Landspítalinn við Hringbraut er stærsta byggingarverkefni í íslenskri heilbrigðisþjónustu, reist af opinbera hlutafélaginu Nýjum Landspítala og var kynnt sem eitt mikilvægasta innviðaverkefni Íslandssögunnar.

Uppbygging Landspítala er ein umfangsmesta innviðauppbygging sem farið hefur fram hér á landi. Heildarfjárfestingin dreifist yfir langt framkvæmdatímabil, sem hófst árið 2010 og nær til ársins 2031, og fullfjármögnuð í gildandi fjármálaáætlun Alþingis. Hann á að tryggja framtíð heilbrigðisþjónustu, auka öryggi sjúklinga og skapa nútímalegt háskólasjúkrahús. Verkefnið er komið fram úr tíma- og kostnaðaráætlunum. Ákvörðun um staðsetningu Nýs Landspítala við Hringbraut var tekin á árunum 2013-2015. Þá lá ekki fyrir fullnaðarhönnun, bindandi framkvæmdaáætlun eða raunhæfur samanburður við aðra kosti. Þrátt fyrir það var ákveðið að halda áfram. Framkvæmdir hófust 2018 með áætluð verklok árið 2024 og kostnað í kringum 60 milljarða króna. Sú mynd hefur gjörbreyst. Nú er miðað við verklok á bilinu 2028-2030 og heildarkostnað sem fer líklega í 200-300 milljarða króna. Þetta er ekki smávægilegt frávik heldur margföldun. Gert er ráð fyrir að byggingarframkvæmdum ljúki að mestu við nýjan meðferðarkjarna í árslok 2029.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab