Óhugnanlegt svindl á samfélagsmiðlum til skoðunar hjá lögreglu
Ellie Collins, 26 ára sjónvarpskona sem fjallar um ensku úrvalsdeildina, hefur leitað til lögreglu eftir að óþekktur aðili þóttist vera hún og sendi þekktum íþróttamönnum skilaboð.
Collins greindi frá málinu á Instagram og sagði viðkomandi hafa notað nafn hennar og mynd á WhatsApp til að hafa samband við íþróttastjörnur.
„Þetta hefur verið að gerast af og til í nokkra mánuði og virðist hafa færst í aukana undanfarið,“ sagði Collins.
„Ég hef tilkynnt þetta til lögreglunnar og hún bað mig um að vekja athygli á þessu, sérstaklega meðal þeirra sem ég hef unnið með eða tengst í fótboltaheiminum.“
Collins varaði fólk við því að svara skilaboðum frá einhverjum sem þættist vera hún og hvatti þá sem væru í vafa til að hafa samband við sig beint á Instagram.
Sjónvarpskonan hefur starfað fyrir Premier League Productions og tekið viðtöl við margar stórstjörnur undanfarin ár.
Hún er með tæplega 60 þúsund fylgjendur á Instagram og hefur einnig fjallað um NFL-deildina og Meistaradeild Evrópu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗