„Að reyna að líta tignarlega út á Íslandi“

Brooke Clark ætlaði að fara í handahlaup yfir brú við Vestrahorn en fór á bólakaf í læknum. Samsett mynd/TikTok

Vinkonurnar Angela Turner og Brooke Clark voru á ferðalagi hér á landi fyrr í mánuðinum þegar þær komu við í víkingaþorpinu við Vestrahorn. Þar ákvað Clark að spreyta sig á handahlaupi á brú yfir læk.

Turner birti myndskeið af tiltækinu á TikTok. Þar sést Clark leggja af stað í handahlaup yfir brúna en í stað þess að lenda á fótunum steypist hún fram af brúnni og fer á bólakaf í læknum. Clark varð ekki meint af byltunni og skellihló að eigin hrakförum.

„Að reyna að líta tignarlega út á Íslandi,“ skrifaði Turner yfir myndskeiðið. 

Brúarvalið vakti athygli eins netverja sem sá ástæðu til að leggja orð í belg. „Áhugaverð hugmynd að reyna fyrir sér í handahlaupi í fyrsta sinn á mjórri brú,“ skrifaði hann.

Þegar þetta er skrifað hefur myndskeiðið verið spilað um 410 þúsund sinnum og um 35.600 manns hafa líkað við það.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab