Rubio segir ekkert benda til tölvuárása

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AFP

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að bandarísk yfirvöld hafi engar vísbendingar um að tæknibilanir að undanförnu tengist innbyrðis eða að þær hafi verið af mannavöldum.

Hann reyndi að draga úr áhyggjum bandarísks almennings þegar hann ræddi við blaðamenn í Manílu í dag í tengslum við leiðtogafund í Suðaustur-Asíu.

Bilanirnar hafa meðal annars raskað flugumferð í Bandaríkjunum, tölvupósts- og samskiptaþjónustu Microsoft, bankaþjónustu og greiðslum með farsímum. Þá lá háleynilegt fjarskiptanet bandarískra stjórnvalda niðri um tíma.

„Það fyrsta sem ég vil taka skýrt fram er að við höfum engar vísbendingar, engar sannanir og enga ástæðu til að ætla að þessi atvik tengist innbyrðis,“ sagði Rubio, sem er í för með Donald Trump Bandaríkjaforseta um Asíu.

„Í öðru lagi höfum við engar sannanir eða ástæðu til að ætla að nokkurt þessara atvika sé verk tölvuþrjóta, glæpamanna, annars ríkis eða nokkurs annars sem hefur illt í hyggju.“

Tæknin skipar æ stærri sess

Rubio sagði að aukin notkun tækni í daglegu lífi gæti skýrt hvers vegna fólki virtist sem atvikum af þessu tagi færi fjölgandi.

„Því stærri sess sem tæknin skipar í daglegu lífi okkar, þeim mun áþreifanlegri verður áhættan,“ sagði hann.

„Áður fyrr gengu menn með grímur og byssur inn í banka til að ræna þá. Nú geta þeir gert það bak við tölvuskjá hinum megin á hnettinum. Öll helstu hagkerfi heims glíma við sama vanda.“

Háleynilegt net lá niðri

Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin (NSA) staðfesti að háleynilegt net sem hún notar til samskipta innan stofnunarinnar hefði legið niðri í gær.

Stofnunin sagði að truflun hefði orðið tímabundið við hefðbundið viðhald sem hefði verið skipulagt fyrir fram. Hún hefði áfram getað sinnt verkefnum sínum og tryggt þjóðaröryggi.

NSA heyrir undir bandaríska varnarmálaráðuneytið og annast eftirlit, upplýsingasöfnun og úrvinnslu upplýsinga á heimsvísu í þágu leyniþjónustustarfa og varna gegn njósnum.

Stjórn Trumps hefur fullvissað almenning um að öryggi hans og kerfanna sem hann reiðir sig á sé tryggt. Markwayne Mullin, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði að bilanirnar væru ekki verk tölvuglæpamanna.

„Ég get sagt með fullri vissu að engin árás stendur yfir,“ sagði Mullin við CNBC. „Engin tölvuógn steðjar að okkur. Landið er öruggt.“

Öll flugtök stöðvuð í nokkrar klukkustundir

Bandarísk flugmálayfirvöld stöðvuðu öll flugtök í landinu í nokkrar klukkustundir á föstudagskvöld vegna bilunar sem stjórn Trumps rakti til úrelts búnaðar. Farþegar og flugáhafnir sátu fastir og áhrif röskunarinnar komu fram um helgina og fram í þessa viku.

Mikil bilun varð hjá Microsoft í síðustu viku og hafði áhrif á notendur Outlook og Teams um allan heim. Í fyrradag urðu truflanir á bankaöppum og netbönkum nokkurra stórra banka.

Demókratar krefjast skýringa

Demókratar, sem unnu afgerandi sigur í þingkosningunum fyrr í mánuðinum, kenndu vanhæfni ríkisstjórnarinnar um bilanirnar og gagnrýndu hana fyrir að veita litlar upplýsingar um þær.

„Fyrst varð bilun hjá Microsoft og síðan voru flugtök stöðvuð um allt land. Nú höfum við áhyggjur af háleynilegum netþjónum hjá NSA,“ sagði Hakeem Jeffries, einn af forystumönnum demókrata á Bandaríkjaþingi.

„Ég tel kominn tíma til að fulltrúar ríkisstjórnarinnar komi fyrir þingið og geri grein fyrir sínu máli. Þá getum við fengið að vita til hvaða aðgerða þurfi að grípa og upplýst bandarísku þjóðina.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab