Draumurinn breyttist fljótt í martröð

Rasmus Nicolaisen er kominn aftur í landsliðið.

Rasmus Nicolaisen er kominn aftur í landsliðið. AFP/Valentine Chapuis

Rasmus Nicolaisen, fyrirliði franska knattspyrnuliðsins Toulouse, hefur lýst því hvernig fyrsta kallið í danska landsliðið varð að martröð.

Meiðsli neyddu hann til að yfirgefa æfingabúðirnar eftir aðeins einn dag í september 2024. Hinn 29 ára gamli Nicolaisen er aftur kominn í landsliðshópinn í fyrsta sinn frá meiðslunum.

„Ég entist aðeins í einn dag. Það voru ekki einu sinni allir komnir og ég hafði ekki tíma til að heilsa öllum,“ sagði Nicolaisen við B.T.

„Manni líður dálítið eins og það sé verið að taka þetta frá manni og þá vill maður gera allt til að komast þangað aftur,“ bætti hann við.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab