Gætu fengið 60 þúsund króna sekt á Gullna hringnum
Ferðamenn sem geta ekki framvísað gildu aðgangsskírteini á Gullna hringnum gætu átt yfir höfði sér 60 þúsund króna sekt samkvæmt nýju stjórnarfrumvarpi um náttúru- og innviðagjald.
Frumvarpinu var dreift á Alþingi á mánudagskvöld og er gert ráð fyrir að nýju lögin taki gildi 1. maí 2027, verði þau samþykkt.
Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins í dag verður Ferðamálastofu falið að annast álagningu sekta og innheimtu. Þeir sem geta ekki sýnt fram á gilt aðgangsskírteini eiga samkvæmt frumvarpinu að greiða 60 þúsund króna stjórnvaldssekt. Hægt verður að ljúka málinu á staðnum með greiðslu lækkaðrar sektar, 20 þúsund króna.
Gert er ráð fyrir að rekstur innheimtu- og eftirlitskerfisins kosti um 350 milljónir króna á ári. Á móti er áætlað að gjaldið skili ríkissjóði um 4,7 milljörðum króna árið 2027.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir áformin harðlega í samtali við Morgunblaðið. Hann telur frumvarpið vanhugsað og varar við því að auknar álögur geti dregið úr áhuga ferðamanna á Íslandi.
„Ég veit ekki hvaða stormsveitir ríkisstjórnarinnar verða settar í þetta verkefni en ég held að það sé ekki hægt að hafa mikið flóknari og erfiðari útfærslu,“ segir Guðlaugur.
Hann bendir jafnframt á að ferðamönnum þyki Ísland þegar dýr áfangastaður og telur hættu á að ný gjaldtaka skaði samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗