Jeff Bezos uppljóstrar áhugaverðri staðreynd um valið á Robert Pattinson sem Bond
Valið á Robert Pattinson sem nýjum James Bond fór fram aðeins þremur dögum fyrir tilkynninguna, sagði Jeff Bezos á þriðjudag.
„Við fórum í gegnum mjög strangt ferli og tókum endanlega ákvörðun á föstudag,“ sagði Bezos, stofnandi Amazon, á ráðstefnunni Silicon Valley & The World sem fer fram á vegum Semafor í Menlo Park í Kaliforníu.
Bezos veitti ítarlega innsýn í ferlið á bak við tjöldin við val á leikara í hlutverk James Bond, hlutverk sem er eitt þekktasta hlutverk kvikmyndasögunnar, en miklar getgátur hafa verið um hver tæki við keflinu af Daniel Craig. Og umræðan varð sídst minni eftir að tilkynnt var á mánudagsmorgun að Pattinson hefði orðið fyrir valinu.
Ummæli Bezos gáfu jafnframt til kynna að hann, sem dtjórnarformaður Amazon, hefði komið beint að vali á leikurum.
Amazon MGM Studios tók við skapandi stjórn á þessari langlífu kvikmyndaseríu á síðasta ári og fékk Denis Villeneuve til að leikstýra myndinni, sem enn hefur ekki fengið titil eða frumsýningardag.
„Stór hópur“ umsækjenda var þynntur út í fimm úrslitakeppendur, sem hver um sig lék í þremur atriðum í prufutökum, að sögn Bezos.
„Við gerðum alvöru, gamaldags prufutökur með þessum fimm úrslitakeppendum og það var virkilega áhugavert. Í fullum búningi, alvöru leikmyndir, aðrir leikarar með þeim,“ sagði Bezos.
Jeff Bezos. Mynd: Getty. Robert Pattinson kynntur til leiks sem Bond.
Hann greindi ekki frá nöfnum þeirra fjögurra sem til greina komu ásamt Pattinson, en meðal leikara sem sagðir eru hafa komið til greina í hlutverkið voru Callum Turner, Josh O’Connor, Jack Lowden og Nicholas Hoult.
„Svo hittumst við á föstudaginn og vörðum nokkrum klukkustundum í að skoða allar þessar prufutökur og fara yfir málin,“ sagði Bezos, sem lýsti öllum leikurunum sem „afar hæfileikaríkum“.
„Þegar við vorum komin með þennan lista yfir fimm aðila voru þeir allir frábærir. En það var eitthvað sérstakt við Rob og frammistöðu hans. Og það var í raun enginn vafi um það strax í upphafi,“ bætti hann við.
Það var þó eitt sem mælti gegn því að hinn fertugi Pattinson fengi hlutverkið: Menn töldu að hann gæti verið of frægur. Þeir sex leikarar sem höfðu farið með hlutverk Bonds á undan honum, Sean Connery, George Lazenby, Roger Moore, Timothy Dalton, Pierce Brosnan og Daniel Craig, voru annaðhvort lítt þekktir eða höfðu aðallega starfað í leikhúsi og sjónvarpi áður en þeir öðluðust heimsfrægð í hlutverki Bond.
„Við hugsuðum með okkur að kannski ættum við að velja einhvern sem væri aðeins óþekktari,“ sagði Bezos. „En í prufunni var það svo augljóst: Rob er James Bond.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗