Þó nokkur félög á eftir De Bruyne - Rætt við þrjú félög á Englandi
Kevin De Bruyne, miðjumaður Napoli, gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í janúar. Samkvæmt Teamtalk hafa fulltrúar hans haft samband við Brentford, Fulham og Crystal Palace vegna mögulegra félagaskipta.
Belginn, sem er 35 ára, er sagður ósáttur við stöðu sína hjá Napoli og opinn fyrir því að snúa aftur til Englands. Hann hefur einnig verið orðaður við Everton en engar formlegar viðræður hafa farið fram.
De Bruyne gekk til liðs við Napoli frá Manchester City sumarið 2025 en samningur hans rennur út næsta sumar. PSV í Hollandi hefur einnig sýnt honum áhuga.
De Bruyne lék í áratug með City og vann meðal annars sex Englandsmeistaratitla. Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp tvö á þessari leiktíð.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗