Jón Gnarr opnar sig um sárar minningar – „Ekki skánaði það þegar hann hermdi eftir mér “
Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, opnar sig um bernsku sína, erfið samskipti við föður sinn og sérkennilegan talanda sem hefur fylgt honum alla ævi. Hann segist lengi hafa verið gagnrýndur fyrir hvernig hann talar og veltir því nú fyrir sér hvort um einhvers konar stam geti verið að ræða.
Í persónulegum pistli í Morgunblaðinu í dag lýsir Jón því hvernig hann notar mikið af hikorðum á borð við „sko“ og „hérna“ og eigi það til að draga seiminn þegar hann talar.
„Ég veit ekki af hverju ég geri þetta en ég hef talað svona frá því að ég var barn,“ skrifar hann.
Grunur um heilaskaða
Jón rifjar upp að hann hafi verið rannsakaður af sérfræðingum á Barna- og unglingageðdeild Landspítala við Dalbraut frá þriggja til fimm ára aldurs vegna þroskafrávika.
„Í fyrstu lék grunur á að einhvers konar heilaskaði væri að hrjá mig en ekkert slíkt kemur fram á röntgenmyndatökum. Ég reynist heldur ekki heimskur heldur þvert á móti.“
Rannsóknirnar hafi ekki leitt til neinnar afgerandi niðurstöðu en hann hafi verið talinn misþroska, hugtak sem hann segir síðar hafa verið lagt að jöfnu við ADHD.
Jón segist hafa verið afar fróðleiksfús sem barn og fljótur að læra að lesa. Hins vegar hafi hann átt erfitt með skrift og tölur og enn þann dag í dag þekki hann ekki tölunúmer mánaðanna.
„Kannski það sárasta“
Jón segir að talandinn hafi líklega átt þátt í erfiðum samskiptum hans við föður sinn.
„Þessi talandi minn var líklega eitt af því sem gerði samskipti okkar pabba erfið. Kannski það sárasta.“
Föður hans hafi þótt talandinn vera leiðinlegur ávani eða ósiður og hafi ávítað hann þegar hann reyndi að spyrja spurninga eða fá útskýringar.
„Hann var auðvitað að reyna að hjálpa mér en það gerði þetta bara ennþá verra. Og ekki skánaði það þegar hann hermdi eftir mér.“
Jón segir að vandinn geri síður vart við sig þegar hann leikur eða flytur texta. Hann sé hins vegar mest áberandi þegar hann reynir að hugsa og tala samtímis.
Hann hafi ítrekað reynt að breyta talandanum, án árangurs, og telur að þetta sé einfaldlega hluti af því hvernig taugakerfi hans starfar.
Skammast sín ekki
Jón segist nú hafa sætt sig við talandann og láti ekki lengur stríðni vegna hans á sig fá.
„Þetta veldur mér engum óþægindum og ég skammast mín ekki neitt fyrir þetta lengur, ekki frekar en litblinduna.“
Hann velti því þó fyrir sér hvort talandinn geti verið ákveðin tegund af stami.
Í lok pistilsins tekur Jón fram að tilgangurinn með því að segja frá þessari reynslu sé hvorki að leita eftir athygli né meðaumkun.
„Ég er að tala til þeirra sem þekkja eitthvað svipað, í þeirri von að mín saga geti hjálpað þeim að ná árangri. Orðið er frjálst.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗