Hildur tjáir sig um líðan sína: „Mér finnst ég vera að losna úr ofbeldissambandi“

Í gær voru þrjár vikur liðnar frá síðustu uppsagnarhrinu hjá Reykjavíkurborg, þriðja og síðasta áfanga við fækkun stöðugilda frá því að núverandi meirihluti tók við í borginni í byrjun júní. Stöðugildum var fækkað um 74 þann 27. október og fengu fimmtíu starfsmenn beina uppsögn, ein þeirra var Hildur Lilliendahl Viggósdóttir. 

Sjá einnig: Hildi sagt upp eftir tæp 19 ár hjá borginni: „Sár og leið og reið og vonsvikin“

Hildur starfaði sem verkefnastjóri skrifstofu borgarstjórnar og annaðist hún meðal annars utanumhald og framkvæmd kosninga í Reykjavík.   

Hildur tjáði sig um tímabilið frá uppsögn og líðan sína síðan í færslu á Facebook í gær. Sagðist hún mjög oft spurð, ýmist á götu eða í skilaboðum, hvernig hún sé eða hvernig hún hafi það. Bæði af sínu fólki en líka hálfókunnugu fólki. 

„Ég svara alltaf hreinskilnislega en ég veit líka að mörg eru að velta þessu fyrir sér en kunna ekki við að spyrja. Hér er því smá update um líðan mína. Í dag eru þrjár vikur síðan ég var rekin úr vinnunni með bréfi á Ísland punktur is eftir átján ár í starfi, frekara vinnuframlag afþakkað og aðgangskortið mitt gert óvirkt. Í morgun tók ég (í fyrsta sinn í þessu ferli) eina litla kvíðastillandi pillu svo ég kæmist í klippingu og nú ætla ég að nýta áhrifin af henni til að reyna loksins að skrifa eitthvað smá. Ég hef ekki getað það hingað til. Ég hef reyndar eiginlega ekki getað gert neitt. Mér líður gjörsamlega djöfullega. Inn á milli koma einhverjir ágætir dagar og ég hugsa að nú sé þetta að verða búið en svo hellist yfir mig lamandi og yfirþyrmandi sorg sem er mjög sársaukafull.“ 

Hildur segir stjórnlaus grátköst koma en þau séu miklu betri en sorgin, þá er hún að hleypa sorginni út. Hún segist vera að reyna að vanda sig eins og hún getur, hún viti að þetta er ferli og það skipti máli að leyfa sér að dvelja í tilfinningunum sem koma en þetta tekur lengri tíma en Hildur bjóst við. 

„Það eru triggerar út um allt og úrið mitt segir mér að ég sé í svo til viðstöðulausu streituástandi.“

Segir uppsögnina ekki hafa komið á óvart

Hildur segir uppsögnina ekki hafa komið sér ekki á óvart og þrátt fyrir áfallið fylgdi henni mikill léttir. Segir hún hafa verið að leita að allt öðru þegar hún fann tveggja ára gömul skilaboð við vinkonur sínar, þar sem Hildur sagði:

„Mér líður svo mikið eins og ég sé ein á þessum vinnustað. Samt elska ég verkefnin mín. Bara upplifi mig eina og einangraða.“ 

Segist hún hafa byrjað að finna það strax frá borgarstjórnarkosningum síðastliðið vor að uppsögn hennar væri yfirvofandi. 

„Ég skynjaði á framkomu yfirmanns og andrúmsloftinu í vinnunni að þetta myndi gerast, eins og ég mun mögulega ræða nánar síðar, en mig hefði aldrei grunað að þetta yrði svona óbærilega erfitt. Auðvitað eru ljósir punktar, mér finnst ég vera að losna úr ofbeldissambandi sem ég mun loksins geta farið að vinna úr þegar áfallið er gengið yfir. Og ég veit að þegar ég verð búin að jafna mig mun eitthvað miklu miklu betra taka við. Það er líka huggun að finna, og vita með heilanum mínum, að ég gerði ekkert rangt, ég ber ekki ábyrgð á þessu og ég hef ekkert til að skammast mín fyrir. Oft þegar ég hef orðið fyrir áföllum hafa afleiðingarnar birst í því að mér finnst erfitt að vera meðal fólks og vil helst fela mig. Það er ekki tilfellið núna. Það er ekki erfitt að labba niður Laugaveginn. Skömmin er þeirra þótt framkoman sé yfirgengilega niðurlægjandi.“

Hildur segir að þrátt fyrir pilluna sem hún tók áður en hún settist niður og skrifaði þá skrifi hún orð sín niður titrandi og með dúndrandi hjartslátt en hún hafi samt viljað segja frá hvernig henni líði því hún vill að fólk viti það.

Hildur segir að það sé algjörlega ástæðulaust að hafa áhyggjur af sér, hún veit að þetta mun lagast og allt verða miklu miklu betra seinna en svona er staðan eftir þrjár vikur. 

„Ég skynja svo mikla umhyggju alls staðar í kringum mig. Þið þurfið öll vita að þótt ég sé ekki alltaf í ástandi til að sýna það, svara skilaboðum eða ræða málin, þá er ég óendanlega þakklát fyrir þessa miklu og auðsýndu samkennd og hún er raunverulega að gera mér þetta ferli auðveldara en annars hefði verið. Takk, elsku fólk.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅