Xi og Pútín ræddu saman í tvo tíma

Pútín og Xi Jinping takast í hendur í Shenzhen í morgun. AFP/Sergei Bobylyov

Xi Jinping, leiðtogi Kína, og Vladímír Pútín, starfsbróðir hans frá Rússlandi, ræddu saman í rúmar tvær klukkustundir í Shenzhen í morgun, degi fyrir sögulegan þríhliða leiðtogafund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í borginni, sem er staðsett í suðurhluta Kína.

Meðal þeirra málefna sem sendinefndir Rússlands og Kína á staðnum ræddu voru „horfur á frekara efnahagssamstarfi Rússlands og Kína“, að sögn TASS en þetta var þriðji fundur leiðtoganna tveggja augliti til auglitis á þessu ári, að því er BBC greindi frá. 

AFP/Sergei Bobylyov

Ræða málefni Úkraínu

Þríhliða fundurinn á morgun hefur vakið ótta um að valdamennirnir þrír kunni að ráða örlögum Úkraínu án aðkomu úkraínskra stjórnvalda og Evrópu og reyna að skipta heiminum upp í áhrifasvæði 21. aldarinnar.

Bandarísk stjórnvöld höfðu gefið til kynna að ekki væri búist við að fjallað yrði um Úkraínu, sem er mál sem Xi telur ekki vera vandamál Kína, en Trump sagði síðar að það yrði gert.

Trump áður en hann steig um borð í forsetaflugvélina.

Trump áður en hann steig um borð í forsetaflugvélina. AFP/Mandel Ngan

Kínversk stjórnvöld hafa einungis sagt að leiðtogarnir muni eiga „ítarleg skoðanaskipti um að standa vörð um heimsfrið og efla stefnumarkandi stöðugleika í samskiptum stórvelda“ samhliða fundi Efnahagssamstarfs Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC).

Einnig verða Íransstríðið og kjarnorkuafvopnun til umræðu, að sögn bandarískra stjórnvalda, eftir að tvíhliða samningur Bandaríkjanna og Rússlands um kjarnavopn rann út í febrúar.

Kínversk stjórnvöld hafa lengi haldið því fram að Bandaríkin og Rússland ættu að minnka gríðarstór kjarnavopnabúr sín áður en Kína fellst á viðræður um sitt minna vopnabúr.

Pútín og Xi í morgun.

Pútín og Xi í morgun. AFP/Sergei Bobylyov

Vesturlönd hafa sniðgengið Pútín frá því að hann hrinti af stað verstu átökum í Evrópu frá seinni heimsstyrjöldinni með árás sinni á Úkraínu árið 2022.

Í ávarpi á APEC-fundinum í morgun sagðist hann eiga von á að þríhliða leiðtogafundurinn með Xi og Trump yrði „afar gagnlegur“.

„Á tímum þegar hernaðarleg og pólitísk áhætta fer vaxandi er brýn þörf á einingu fremur en sundrungu ... og samræðum fremur en úrslitakostum,“ sagði Pútín.

Hann sagði að refsiaðgerðir Vesturlanda gegn Rússlandi frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 hefðu mistekist og hélt því fram að þær væru „ekki færar um að stöðva vöxt að fullu eða eyðileggja hagkerfi samkeppnisaðilanna“.

Xi hvatti til aukins alþjóðlegs samstarfs um gervigreind og fríverslun.

„Kína mun ráðast í djúpstæðar umbætur, fyrst með því að lækka tolla, auka aðgengi og kanna reglur og stjórnunarstaðla,“ sagði Xi þegar hann setti fundinn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab