Flugþjónn bað farþegana um að sitja kyrrir – Viðbrögðin komu honum í opna skjöldu

Fallegt augnablik átti sér stað í flugi til Dallas í Bandaríkjunum fyrir stuttu. Farþegi var stressaður um að missa af tengiflugi og fékk óvænta aðstoð frá öðrum farþegum.

Samkvæmt Upworthy ræddi farþeginn við flugþjón sem bað alla farþega um að sitja áfram kyrrir eftir lendingu. Hann gat ekki skikkað þá til þess en útskýrði málið og sagði farþegann þurfa að drífa sig út úr vélinni til að ná næsta flugi og það myndi hjálpa gríðarlega ef hann kæmist fyrst út, en umræddur farþegi sat aftarlega og hefði að öllum líkindum misst af vélinni ef allt hefði gengið sinn vanagang.

Farþeginn, Ryan Bly, greindi frá málinu á samfélagsmiðlinum Threads.

Hann segir að það sem hafi komið honum og flugþjóninum í opna skjöldu hafi verið að þetta virkaði. Hver einasti farþegi sat kyrr á meðan hann kom sér út úr vélinni. Hann náði tengifluginu.

„Ég fékk aftur smá trú á góðmennsku ókunnugra,“ sagði hann.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅