Sakfelldur fyrir kynþáttaníð í garð Mbappe

Stuðningsmaður Real Oviedo hefur verið dæmdur í 11 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynþáttaníð gegn Kylian Mbappe, framherja Real Madrid.

Atvikið átti sér stað í ágúst í fyrra þegar Real Madrid vann Oviedo 3-0 í spænsku deildinni. Stuðningsmaðurinn hermdi eftir apa þegar Mbappe fagnaði marki sínu.

Maðurinn var sakfelldur fyrir hatursglæp og þarf einnig að greiða sekt. Fangelsisrefsingin er skilorðsbundin að því tilskildu að hann haldi sig frá knattspyrnuleikvöngum næstu tvö árin.

Real Madrid tók þátt í að leysa málið og fagnar niðurstöðunni. Þetta er í tólfta sinn frá því í júní 2024 sem sakfellt er fyrir kynþáttaníð í tengslum við leiki í efstu deild Spánar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅