Andrea kynntist þakkargjörðarhátíðinni í Bandaríkjunum

Andrea Gunnarsdóttir kynntist þakkargjörðarhátíðinni þegar hún bjó í Bandaríkjunum og hefur haldið í hefðina síðan. Snickers-salatið er meðal þess sem hún ber fram með kalkúninum. Þakkargjörðarhátíðin verður haldin í Bandaríkjunum fimmtudaginn 26. nóvember, í næstu viku. Af því tilefni rifjar Andrea Gunnarsdóttir upp góða uppskrift að kalkúnaveislu þar sem beikon, döðlur og sveppasósa koma við sögu. Punkturinn yfir i-ið er Snickers-salat með rauðum eplum og stór saltkaramellusmákaka með þrenns konar súkkulaði.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab