Segir frá því hvers vegna þær hafa aldrei gifst
Sarah Paulson og Holland Taylor í Óskarsveislu Vanity Fair árið 2018. Í janúar verða tólf ár síðan þær urðu par. AFP/Dia Dipasupil
Bandaríska leikkonan Sarah Paulson hefur verið með leikkonunni Holland Taylor í tæp tólf ár og segist aldrei hafa fundið þörf fyrir að giftast henni.
Henni finnst þær nú þegar giftar, þótt tilhugsunin um að ganga í hjónaband vekti með henni ónot.
Paulson, sem er 51 árs og er meðal annars þekkt fyrir leik sinn í þáttunum American Horror Story, ræddi samband þeirra í hlaðvarpi Chelsea Handler, Dear Chelsea. Þær Taylor, sem er 83 ára, kynntust árið 2005 en urðu par áratug síðar.
„Ég er ánægð með að hafa aldrei gifst,“ sagði Paulson. Hún sagðist kunna vel að meta sjálfstæði sitt og taldi Taylor líta málin sömu augum. Hún vildi hvorki verja minni tíma með Taylor né vera með einhverjum öðrum.
Það væri fremur sú tilfinning að tilheyra annarri manneskju sem færi í hana. Hvorugri þeirra hugnaðist að vera kölluð eiginkona.
Sarah Paulson ásamt Holland Taylor, sem er 32 árum eldri en hún, í New York árið 2018. AFP/Nicholas Hunt
Dvelja saman þegar færi gefst
Taylor ræddi á dögunum í spjallþætti Drew Barrymore hvernig þær haga búsetu sinni. Hún sagði vinnuna oft kalla þær til ólíkra staða en þær verji eins miklum tíma saman og kostur sé á. Þegar báðar væru í New York dveldu þær saman í íbúð hennar.
Í Los Angeles hafa þær hvor sitt heimili. Þegar viðtalið fór fram hafði Paulson þó búið hjá Taylor þar í tæpt ár á meðan hún beið þess að flytja inn á nýtt heimili.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/3/3/1030378.jpg)
