Eignaspjöll og líkamsárás í miðbænum

Lögreglan að störfum í miðbæ Reykjavíkur.

Lögreglan að störfum í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um eignaspjöll og líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur.

Málið er í rannsókn, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun. Alls eru 63 mál skráð í kerfi lögreglunnar á umræddu tímabili.

Einnig var tilkynnt um eignaspjöll í Garðabæ og er það mál sömuleiðis í rannsókn.

Einn var handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg og var hann vistaður í fangageymslu sökum ástands.

Þrír óku yfir á rauðu

Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi, þar af einn í Reykjavík og tveir í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti.

Þrír voru jafnframt kærðir af lögreglunni í Kópavogi og Breiðholti fyrir að aka án gildra ökuréttinda eða sviptir ökuréttindum. Einn var kærður fyrir að hafa ekki ökuskírteini meðferðis.

Í sama umdæmi var einn handtekinn fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptur ökuréttindum. Hann var fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli og látinn laus að því loknu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab