Hrædd dóttir hans hringdi og bað um pening – „Þess vegna þurfa allar fjölskyldur öryggisorð“
Fókus
Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 07:00
Rob Shindler er lögfræðingur og faðir. Mynd/Pexels/TikTok
Síminn hringir og á hinum endanum er dóttir þín. Hún hljómar hrædd, segist vera í vandræðum og biður þig um pening. En hvað ef þetta er ekki dóttir þín heldur einhver sem hljómar nákvæmlega eins og hún?
Bandaríski lögfræðingurinn Rob Shindler vekur athygli á nýrri tegund af fjársvikum á TikTok þar sem óprúttnir aðilar nota gervigreind til að hafa fé af fólki.
„Þetta er ástæðan fyrir því að hver fjölskylda þarf öryggisorð,“ segir Rob.
„Gervigreind þarf bara stutta myndbandsklippu til að herma eftir rödd einhvers. Þannig að ef þú færð símtal og það hljómar nákvæmlega eins og krakkinn þinn, ekki óttast. Haltu ró þinni og spurðu um öryggisorðið. Orð sem bara þú og þín fjölskylda vitið hvað er. Ef manneskjan á hinni línunni veit ekki orðið, skelltu á hana [...] Aldrei senda bara pening því einhver hljómar hræddur. Það getur sparað þér hundruð þúsunda að halda stuttan fjölskyldufund og ákveða öryggisorð.“
Horfðu á myndbandið hér þar sem má heyra slíkt símtal.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗