Gæti orðið sögulegt kvöld í Laugardalnum - Svona sækir þú um frían miða

KSÍ kynnti á dögunum verkefnið „Skrifum söguna saman“ vegna landsleiks Íslands og Portúgals á Laugardalsvelli 5. desember. 

Með verkefninu bjóða KSÍ og bakhjarlar sambandsins þjóðinni á leikinn með það að markmiði að fylla Laugardalsvöll og skapa sterka heimavallarumgjörð. 

Almenna boðsmiðaferlið opnaði í gær í miðakerfi KSÍ. Boðsmiðar verða með númeruðum sætum og nánari leiðbeiningar verða aðgengilegar á http://midasala.ksi.is/. Hægt er að sækja um allt að 6 miða.

Boðsmiðum verður úthlutað með slembivali svo allir umsækjendur eigi jafna möguleika. Það skiptir því ekki máli hvenær fólk sækir um, svo lengi sem umsókn berist innan umsóknarfrests. Umsóknarfrestur rennur út kl. 23:59 mánudaginn 23. nóvember. 

Í hlekknum hér að neðan má finna leiðbeiningar um miðahappdrættið og þar eru svör við spurningum líkt og:

  • Hvernig get ég náð í miða á Ísland – Portúgal?
  • Hvernig skila ég miðum?
  • Ísland – Portúgal: Ég fékk úthlutað miðum! Hvað gerist næst?
  • Hver getur keypt miða?

Miðahjálp KSÍ

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅