Víða bjart á landinu í dag

Frost verður á bilinu 1 til 13 stig á landinu í dag. mbl.is/Karítas

Í dag verður austlæg eða breytileg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu, en hvassara við suðurströndina fram undir morgun.

Víða verður bjart, en stöku skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina.

Það verður norðlæg átt og slydduél eða él norðanlands í kvöld.

Á morgun verður norðaustlæg eða breytileg átt, 5–10 m/s, og stöku slydduél, en þurrt að kalla vestanlands.

Frost verður á bilinu 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðan til, en hiti í kringum frostmark við suðurströndina.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅