Andrea kynntist þakkargjörðarhátíðinni í Bandaríkjunum
Andrea Gunnarsdóttir kynntist þakkargjörðarhátíðinni þegar hún bjó í Bandaríkjunum og hefur haldið í hefðina síðan. Snickers-salatið er meðal þess sem hún ber fram með kalkúninum. Samsett mynd/Aðsend
Þakkargjörðarhátíðin verður haldin í Bandaríkjunum fimmtudaginn 26. nóvember, í næstu viku. Af því tilefni rifjar Andrea Gunnarsdóttir upp góða uppskrift að kalkúnaveislu þar sem beikon, döðlur og sveppasósa koma við sögu. Punkturinn yfir i-ið er stór saltkaramellusmákaka með þrenns konar súkkulaði.
Andrea kynntist hátíðinni þegar hún bjó í Bandaríkjunum og hefur haldið í hefðina eftir heimkomuna. Hún birtir uppskriftirnar á vef sínum og lýsti því hvernig heill dagur í eldhúsinu hefði skilað sér í eftirminnilegri máltíð.
„Máltíðin var gjörsamlega dásamleg og við vorum afvelta eftir matinn,“ skrifaði Andrea.
Þakkargjörðarhátíðin verður haldin í Bandaríkjunum fimmtudaginn 26. nóvember, í næstu viku. Ljósmynd/Aðsend
Hún bar kalkúninn fram með sveppasósu, sætkartöflumús með pekanhnetukrönsi, Snickers-salati, smjörsoðnum maískornum og fyllingu með beikoni og döðlum.
Beikonklætt kalkúnaskip
- 1 kalkúnaskip, stærð eftir fjölda matargesta
- 300 g beikon í sneiðum
- Best á kalkúninn kryddblanda
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 °C.
- Klæðið bökunarplötu með álpappír eða bökunarpappír og komið kalkúnaskipinu fyrir á henni.
- Nuddið kryddblöndunni vel yfir kalkúnaskipið og þekið það með beikonsneiðum þannig að hvergi sjáist í kjötið.
- Eldið í um 2–3 klukkustundir, eftir stærð kalkúnaskipsins. Andrea miðaði við um 2½ klukkustund fyrir 3 kg kalkúnaskip.
- Notið kjöthitamæli til að meta hvort kjötið sé tilbúið. Kjarnhiti í þykkasta hluta bringunnar á að ná að minnsta kosti 74°C. Mælirinn má ekki snerta bein.
Fylling með beikoni og döðlum
- 15 franskbrauðsneiðar, skornar í teninga
- 200 g beikon, skorið í strimla
- 2 laukar, skornir í þunnar sneiðar
- smjör til steikingar
- 10 döðlur, saxaðar smátt
- 1 msk. kalkúnakraftur
- 1½ tsk. Best á kalkúninn kryddblanda
- 2 msk. kalkúnakrydd
- ½ tsk. hvítur pipar
- salt og pipar eftir smekk
- 2 egg, léttþeytt
- 2½ dl nautasoð úr fernu
Aðferð
- Steikið beikonið á pönnu þar til það er orðið stökkt. Takið það af pönnunni og setjið til hliðar.
- Bræðið smjör á pönnunni og steikið laukinn í um 8 mínútur.
- Bætið döðlum, kalkúnakrafti og kryddi saman við og blandið vel.
- Setjið brauðteningana og beikonið á pönnuna. Blandið saman og steikið í 3–4 mínútur.
- Bætið eggjunum og nautasoðinu saman við og blandið vel. Færið í eldfast mót.
- Þegar kalkúnninn er tilbúinn er fyllingin sett í ofninn og bökuð í um 20–30 mínútur, þar til hún er elduð í gegn.
Villisveppasósa
- 5 skalottlaukar, saxaðir smátt
- 250 g sveppir, sneiddir
- 1 bréf sveppasósa
- villisveppaostur, rifinn
- 2½ dl nautasoð
- 4 dl rjómi
- 1 sveppateningur
- 1 nautateningur
- 3 msk. rifsberjahlaup
- hvítur pipar eftir smekk
- 1½ tsk. kalkúnakrydd
- smjör til steikingar
Aðferð
- Bræðið smjör í potti. Þegar það er farið að freyða er skalottlauknum og sveppunum bætt út í. Steikið í um 8 mínútur.
- Bætið sósuduftinu og rifnum villisveppaostinum saman við.
- Hellið nautasoðinu út í í mjórri bunu og hrærið vel á meðan.
- Bætið rjómanum, sveppateningnum og nautateningnum saman við og látið suðuna koma upp.
- Hrærið rifsberjahlaupinu og kryddblöndunni saman við. Smakkið til með hvítum pipar.
- Látið sósuna malla við vægan hita í um 5 mínútur áður en hún er borin fram.
Snickers-salat með rauðum eplum
Í salatinu mætast rauð epli, Snickers og mjúk rjómablanda með vanillubragði. Andrea hefur meðal annars borið það fram með kalkún, hamborgarhrygg og lambalæri. Ljósmynd/Aðsend
- 6 rauð epli, skorin í teninga
- 6 Snickers-stykki, skorin í teninga
- 1 pakki af vanillubúðingsdufti
- 2 dl rjómi
- 2½ dl nýmjólk
- 3 msk. majónes
Aðferð
- Þeytið vanillubúðingsduftið og nýmjólkina saman í skál. Setjið í kæli í 10–15 mínútur.
- Þeytið rjómann.
- Skerið eplin og Snickers-stykkin í teninga.
- Hrærið majónesinu saman við vanillubúðinginn þar til blandan er kekkjalaus.
- Blandið þeytta rjómanum varlega saman við búðingsblönduna.
- Blandið eplunum og Snickers-bitunum varlega saman við með sleif.
- Geymið salatið í kæli þar til það er borið fram.
Sætkartöflustappa með pekanhnetukrönsi
Mjúk sætkartöflustappa með stökku pekanhnetulagi er meðal þess sem Andrea ber fram með kalkúninum. Uppskriftina sækir hún á vef Svövu, Ljúfmeti.
- 3 stórar sætar kartöflur
- 100 g hrásykur
- 2 egg
- 75 g mjúkt smjör
- 1 dl mjólk
- ½–1 tsk. vanilludropar
Pekanhnetukröns
- 200 g púðursykur
- 100 g pekanhnetur, saxaðar
- 40 g hveiti
- 75 g brætt smjör
Aðferð
- Hitið ofninn í 175 °C og smyrjið eldfast mót.
- Sjóðið sætu kartöflurnar þar til þær eru mjúkar í gegn. Fjarlægið hýðið og skerið kartöflurnar í bita.
- Setjið kartöflurnar í skál ásamt hrásykri, eggjum, mjúku smjöri, mjólk og vanilludropum. Stappið vel saman og færið yfir í eldfasta mótið.
- Blandið púðursykri, söxuðum pekanhnetum og hveiti saman í annarri skál.
- Hellið brædda smjörinu saman við hnetublönduna og hrærið með skeið.
- Dreifið pekanhnetublöndunni jafnt yfir stöppuna.
- Bakið í um 30 mínútur.
Saltkaramellusmákaka með súkkulaðibitum
Eftirrétturinn er bakaður í steypujárnspönnu og má undirbúa með fyrirvara. Andrea bendir á að hægt sé að geyma óbakaða kökuna í kæli fram að bakstri. Ljósmynd/Aðsend
- 225 g smjör við stofuhita
- 2 egg
- 1 eggjarauða
- 220 g púðursykur
- 220 g sykur
- 3 tsk. vanillusykur
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk. mulið sjávarsalt, eða eftir smekk, og meira til að strá yfir
- 340 g hveiti
- 1 pakki af saltkaramellubúðingsdufti
- 150 g suðusúkkulaðidropar
- 150 g rjómasúkkulaðidropar
- 75 g hvítir súkkulaðidropar
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 °C. Smyrjið 24 cm steypujárnspönnu með smjöri eða bökunarúða.
- Þeytið smjörið, púðursykurinn og sykurinn saman þar til blandan er ljós og létt.
- Bætið eggjunum, eggjarauðunni, vanillusykrinum, saltinu og matarsódanum saman við og þeytið áfram.
- Blandið saltkaramellubúðingsduftinu saman við.
- Bætið hveitinu út í og blandið saman. Hrærið að lokum súkkulaðidropunum saman við deigið.
- Þrýstið deiginu jafnt í pönnuna og stráið sjávarsalti yfir eftir smekk.
- Bakið í 30–35 mínútur. Látið kökuna kólna í 10–15 mínútur áður en hún er borin fram.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





