Víða bjart á landinu í dag
Í dag verður austlæg eða breytileg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu, en hvassara við suðurströndina fram undir morgun.
Víða verður bjart, en stöku skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina.
Það verður norðlæg átt og slydduél eða él norðanlands í kvöld.
Á morgun verður norðaustlæg eða breytileg átt, 5–10 m/s, og stöku slydduél, en þurrt að kalla vestanlands.
Frost verður á bilinu 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðan til, en hiti í kringum frostmark við suðurströndina.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗