Kærasta Brad Pitt stal senunni

Leikarinn og hjartaknúsarinn Brad Pitt mætti á frumsýningu Netflix-kvikmyndarinnar The Further Mis-Adventures of Cliff Booth, þar sem hann fer með aðalhlutverk, fyrr í vikunni. Með honum var kærasta hans til fjögurra ára, Ines de Ramon, en miðað við fréttaflutning fjölmiðla vestanhafs virðist hún hafa stolið senunni.

Hún mætti í glæsilegum kremlituðum kjól með djúpu hálsmáli.

Mynd/Getty Images

Það er töluverður aldursmunur á parinu. Brad Pitt er 62 ára og Ines de Ramon er 33 ára, en verður 34 ára í desember.

Hún er næringarfræðingur, mikil áhugakona um heilsu og hreyfingu, talar þrjú tungumál og er varaforseti skartgripafyrirtækisins Anita Ko. Hún var áður gift leikaranum Paul Wesley, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í geysivinsælu þáttunum Vampire Diaries.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅