Verktaki Þjóðarhallar í miklu basli

Unnið í Laugardal í gær.

Síðastliðinn föstudag undirritaði stjórn Íslenskra aðalverktaka reikning fyrir fyrri árshelming 2026 og lýsti því þar yfir að í lok júní hefði eigandi fyrirtækisins fellt niður skuld þess við sig upp á 3,3 milljarða auk þess sem hann hefði lagt því til 2,1 milljarð í lausafé á fyrstu sex mánuðum ársins.

Undirritunin var dagsett tveimur sólarhringum eftir að Morgunblaðið beindi fyrirspurn til fyrirtækisins auk fleiri aðila er varðaði fjárhagslegt hæfi þess en þann sama dag var fyrsta skóflustunga tekin að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal sem kosta mun tæpa 17 milljarða króna. ÍAV reisir hið mikla mannvirki.

Með hinni fjárhagslegu endurskipulagningu snýst eigið fé ÍAV úr neikvæðu í jákvætt. Það sem meira er, það er ríflega 10% en það voru mörkin sem sett voru þegar Þjóðarhöllin var boðin út. Á þeim tíma þegar gengið var til samninga við ÍAV 15. júní síðastliðinn var fjárhagsstaða félagsins afar veik, eigið fé neikvætt og taprekstur viðvarandi.

Þóroddur Ottesen forstjóri ÍAV hefur vikið sér undan því að svara fyrirspurn Morgunblaðsins um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins og vísar þess í stað í nýframlagðan ársreikning og árshlutareikning sem sendir voru Skattinum nú á mánudag í kjölfar undirritunar. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅