„Þá finnst mér bara mjög mikilvægt að tala opið um mína stöðu“

Sylvía Lind Briem segir það létti að sjá fram á lausn eftir erfiðan tíma. Samsett mynd

Sylvía Lind Briem, sem er tveggja barna móðir og nemi, var tekin til gjaldþrotaskipta á dögunum. Hún segir að þegar reikningarnir fóru að safnast upp hafi hún að lokum ekki séð aðra leið en þessa. 

Í samtali við Smartland segir hún frá því hvernig það var að standa ein undir útgjöldum heimilisins samhliða námi og hvers vegna hún kýs að ræða gjaldþrotið opinberlega.

„Nú er ég í námi og er í rauninni bara fátækur námsmaður og það er rosalega erfitt að standa undir öllu þegar reikningarnir byrja að safnast upp. Ég veit að það tengja rosalega margir við það,“ segir Sylvía.

Fjárhagsáhyggjurnar voru þegar farnar að hafa áhrif á daglegt líf Sylvíu Lindar áður en til gjaldþrots kom. Ljósmynd/Aðsend

Hefur gjaldþrotið haft áhrif á daglegt líf þitt?

„Lífið heldur sinn vanagang,“ segir Sylvía.

Fjárhagsvandræðin hafi þegar verið farin að setja mark sitt á hversdaginn og gjaldþrotið sjálft litlu breytt í þeim efnum.

„Í rauninni, ef eitthvað er, þá er það léttir að það sé lausn í sjónmáli.“

Sylvía segir það ekki auðvelt að ræða eigin fjármál opinberlega, síst af öllu á meðan hún gengur í gegnum gjaldþrot. Henni sé þó hugleikið hversu margir glími við sömu erfiðleika.

„Þá finnst mér bara mjög mikilvægt að tala opið um mína stöðu þar sem það eru því miður margir í sömu stöðu á þessum erfiðu tímum.“

Sylvía Lind er á þriðju önn í Kvikmyndaskóla Íslands og langar að starfa við kvikmyndagerð. Ljósmynd/Aðsend

Vill auðvelda konum að byrja að æfa

Hvernig horfir framhaldið við þér?

„Ég er í tveimur skólum eins og staðan er,“ segir Sylvía. Hún er á þriðju önn í Kvikmyndaskóla Íslands og stefnir á útskrift í maí. Að námi loknu langar hana að starfa við kvikmyndagerð.

Sylvía Lind er þegar byrjuð að þjálfa og útskrifast úr Einkaþjálfaraskóla World Class í desember. Samsett mynd

Samhliða því stundar hún nám í Einkaþjálfaraskóla World Class og þaðan útskrifast hún í desember.

Sylvía er þegar byrjuð að þjálfa í litlum mæli og ætlar að einbeita sér að þjálfun kvenna. Hana langar að opna líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur.

Hugmyndin er sprottin af því að margar konur langi til að byrja að æfa en veigri sér við að stíga fyrsta skrefið að sögn Sylvíu. Sumum þyki erfitt að mæta í líkamsræktarstöð þar sem karlar eru í meirihluta, einkum ef þær eru óöruggar með sjálfar sig.

Hún sér líka fyrir sér að láta fleiri hugmyndir verða að veruleika þegar fram líða stundir. „Ef ég horfi langt til framtíðar þá myndi ég vilja vera með alls konar tengt líkamsræktarstöðinni, eins og fatalínu og annað þess háttar.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab