Sömdu við félag með neikvætt eigið fé

Heiða Kristín Helgadóttir.

Heiða Kristín Helgadóttir. mbl.is/María

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, samdi við félagið Nebraska ehf. um ráðgjöf af hendi Heiðu Kristínar Helgadóttur, annars tveggja eigenda félagsins, í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst.

Samningurinn var undirritaður 4. mars og fól í sér allt að 25 klst. ráðgjafarvinnu á viku fram að atkvæðagreiðslunni og áttu greiðslur að nema að hámarki 1.750.000 kr. á mánuði.

Greiðslurnar hækkuðu

Samkvæmt samningnum hefðu greiðslurnar að hámarki átt að geta numið 10,5 milljónum auk virðisaukaskatts. Gögn sem Morgunblaðið hefur aflað úr ráðuneytinu sýna að gefnir voru út átta reikningar að fjárhæð 1.750 þúsund hver og nam því heildargreiðsla til félagsins 14 milljónum.

Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins segir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins að starf Heiðu Kristínar hafi orðið umfangsmeira og spannað lengri tíma en upphaflega hafi verið lagt upp með og því hafi ráðherra sjálfur gert munnlegt samkomulag við hana um hinar auknu greiðslur sem námu 3,5 milljónum auk vsk.

Jók ekki kostnað ríkissjóðs

Félagið Nebraska var stofnað árið 2018. Þá var eigið fé þess neikvætt sem nam rúmum þremur milljónum króna í árslok 2025 og rúmum átta milljónum árið áður.

Í mars, þegar tilkynnt var um ráðningu Heiðu Kristínar í ráðgjafarstörfin fyrir utanríkisráðherra, upplýsti ráðuneytið ekki að um verktakasamning væri að ræða í gegnum fyrrnefnt félag. Þá fullyrti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ráðherra að ráðningin fæli ekki í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð því yfir það tímabil sem ráðningin spannaði myndi hún ekki ráða sér annan aðstoðarmann, sem hún hefði þó rétt á að gera.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅