Gagnrýnir aðgerðarleysi fyrir andlát sonar síns

Billy Vigar lést ungur að árum eftir slys í knattspyrnuleik.

Billy Vigar lést ungur að árum eftir slys í knattspyrnuleik. Ljósmynd/Arsenal

Móðir Billys Vigar hefur spurt hvers vegna enska knattspyrnusambandið hafi ekki brugðist við fyrri viðvörunum um öryggismál áður en sonur hennar hlaut banvæna áverka í leik.

Vigar, sem lék m.a. með yngri liðum Arsenal, var aðeins 21 árs þegar hann lést eftir að hafa skollið á steinvegg þegar hann lék með Chichester City gegn Wingate & Finchley í september á síðasta ári.

„Ég skil ekki hvernig FA gat beðið eftir því að Billy dæi áður en gripið var til nokkurra aðgerða,“ sagði Camilla Vigar fyrir dánardómstólnum í Norður-Lundúnum.

Hún sagði að fyrri rannsókn hefði leitt í ljós að mikil slysahætta væri til staðar hjá um 160 félögum, þar á meðal Wingate & Finchley, en sambandið hefði ekki brugðist við.

FA bannaði veggi umhverfis velli í upphafi þessa tímabils í kjölfar endurskoðunar á öryggismálum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab