Thomas Möller skrifar: Undralandið Ísland
Á ferðum mínum um landið sem ökuleiðsögumaður með ferðamenn í litlum hópum fæ ég oft tækifæri til að upplifa undur landsins okkar með augum ferðafólksins. Í samtölum við fólkið kemur í ljós hvað það undrast mest og hvað mætti betur fara í ferðaþjónustunni.
Það sem kemur mest á óvart er hrifning ferðafólksins af stöðum og staðreyndum sem við Íslendingar tökum almennt ekki eftir. Upplifun þeirra er oft öðruvísi en okkar.
Það skiptir því máli hvert við förum með ferðafólkið og hvaða fróðleik við miðlum til þeirra á ferðum um landið. Einnig skiptir málið hvernig við göngum sjálf um landið okkar og höldum því aðlaðandi til frambúðar.
Nánar um það í þessari grein.
Ferðaþjónustan skiptir miklu máli
Ferðaþjónustan er í dag ein af mikilvægustu atvinnugreinum Íslands.
Gjaldeyristekjurnar voru um 630 milljarðar í fyrra sem er svipuð upphæð og álið og fiskurinn gaf samanlagt. Til landsins komu um 2,3 milljónir erlendra ferðamanna auk um 300 þúsunda með skemmtiferðaskipum. Hver ferðamaður greiðir því að meðaltali tæpar 2 þúsund evrur fyrir ferð sína.
Þróun síðustu ára í greininni hefur einkennst af hugmyndaauðgi og nýsköpun. Meðal nýjunga má nefna lúxushótel og baðlón um land allt, sýningar með logandi hraun, heimsóknir í brugghús, hestasýningar, hellaskoðanir og veitingar í gróðurhúsum svo örfá áhugaverð dæmi séu nefnd.
Fyrstu skrefin
Fyrstu ferðamennirnir komu á 19. öld og voru einkum vísindamenn, landkönnuðir og efnað fólk sem kom með skipum frá Evrópu og ferðaðist með hestum um landið.
Ferðir til Íslands og um landið voru erfiðar og kostnaðarsamar. Helstu ferðamannastaðir voru Reykjavík, Gullfoss, Geysir og Þingvellir eins og í dag. Ferðamenn gistu á þeim örfáu gistihúsum sem voru í boði en einnig var þeim boðin gisting í kirkjum sem voru oftast bestu og hlýjustu húsin í sveitum landsins.
Ferðaskrifstofa ríkisins var stofnuð árið 1936 og flugsamgöngur jukust samfara auknum skipakomum með ferðamenn. Hótel voru reist víða um land og sumargisting í heimavistum skóla var tekin upp.
Loftleiðir lögðu grundvöll að ferðum með millilendingu í Keflavík sem varð mikilvæg tengistöð milli Evrópu og Norður-Ameríku. Icelandair hafa tekið forystu á þessu sviði síðan.
Síðustu árin hafa ferðaskrifstofur og hótelkeðjur, bílaleigur og fjöldi flugfélaga lagt grunninn að stærstu atvinnugrein okkar sem hefur vaxið með aðstoð Internetsins og eldgossins í Eyjafjallajökli.
Hvað hrífur ferðafólkið mest?
Á ferðum mínum um landið með ferðamenn hef ég tekið eftir því að það eru ekki stóru staðirnir Gullfoss, Geysir og Þingvellir sem hrífa fólkið mest. Reyndar eru þrengslin þar orðin of mikil og nauðsynlegt er að stýra flæðinu þangað betur.
Það sem gerir Ísland sérstakt í augum ferðafólksins er einstök náttúra landsins, víðernið, útsýnið, þögnin, jarðhitinn, fossarnir, jökullónin og norðurljósin. Einnig jarðsaga landsins og saga þjóðarinnar.
Hringvegurinn er líklega vinsælasti „ferðamannastaðurinn“ en talið er að allt að 650 þúsund erlendra ferðamanna hafi farið hringinn í fyrra. Hringurinn er einstakur í heiminum en ekkert land er með hringveg sem hægt er að aka og njóta á einni til tveimur vikum en á hringnum eru um 100 staðir til að heimsækja.
Það eru oft fámennu staðirnir sem heilla mest. Sem dæmi má nefna Deildartunguhver, Reykholt, Skálholt, Arnarstapa, Búðir og Friðheima. Hestasýningar, bjórsmökkun og hvalaskoðanir eru vinsælar auk sýninga á Lýtingsstöðum, Fáskrúðsfirði, Hofsósi, Siglufirði og Grenjaðarstöðum svo örfá dæmi séu tekin.
Heimsóknir í kirkjur vekja mikla ánægju, sérstaklega þegar ferðamönnum er boðið að syngja eða setjast við orgelið. Íslenski hesturinn vekur alltaf mikla hrifningu.
Vinsælustu fossarnir eru Hraunfossar, Goðafoss, Dettifoss, Skógafoss og Seljalandsfoss. Mesta upplifunin er að mati margra að ganga bak við þann síðastnefnda.
Fuglalífið á Íslandi heillar marga. Sú staðreynd að hingað koma um 25 milljónir farfugla af um 50 tegundum til að verpa og ala upp ungana sína og yfirgefa landið á haustin er mikið ævintýri í augum ferðafólksins.
Um 500 þúsund kríur fljúga allt að 60 þúsund kílómetra fram og til baka frá Suðurskautinu. Kría sem nær 30 ára aldri hefur því flogið vegalengd sem samsvarar því að fara tvisvar sinnum til tunglsins og til baka á ævinni!
Stærsta fuglabjarg Evrópu á Látrabjargi vekur alltaf mikla undrun en þar búa um ein milljón fugla á sumrin í bjargi sem er jafn hátt og sex og hálf Hallgrímskirkja.
Íslandssagan heillar
Það sem heillar ferðafólkið mest varðandi sögu landsins er landnámið.
Þeim finnst ótrúlegt að heyra að Ísland sé næst síðasta eyjan sem fannst í heiminum. Enn ótrúlegri er sagan af þeim 437 landnámsmönnum og -konum sem komu á opnum skipum til landsins með fjölskyldur sínar, vini, vinnufólk, verkfæri og búfénað.
Stofnun Alþingis sem tryggði frið í landinu í um 300 ár og kristnitakan sem var ákveðin án átaka einn fallegan júlídag á árinu 1000 vekur alltaf undrun hjá ferðafólkinu.
Sú staðreynd að Ísland breyttist úr einu fátækasta landi Evrópu á 19. öld í eitt af 20 ríkustu löndum heims í dag vekur alltaf mikla athygli og kallar fram spurningar sem leiðsögumenn reyna að svara af bestu getu.
Jarðsagan heillar
Sú staðreynd að Ísland er yngsta land í heiminum sem varð til fyrir um 25 milljónum vekur mikla athygli.
Einnig sú staðreynd að Ísland er eitt af fáum löndum heims sem standa á tveimur jarðflekum sem færast í sundur sem nemur um 2 sentimetrum á ári. Og það gerist án þess að landið stækki enda sér ágangur sjávar um að vinna gegn stækkuninni.
Þessi færsla flekanna þýðir að Esjan, sem varð til fyrir um þremur milljónum ára byrjaði að gjósa þegar hún var á Þingvöllum! Ísinn sem lá yfir öllu landinu á ísöldinni sem lauk fyrir um 12 þúsund árum var jafn hár og Esjan!
Falleinkunn á fjórum sviðum
Á ferðum mínum er ég oft spurður út í það hvers vegna við látum fólk komast upp með það að geyma bílhræ, ónýta gáma og ryðgaðar vinnuvélar meðfram vegum. Þeim blöskrar þessi umgengni um þetta fallega land.
Vegakerfið fær slæma einkunn enda uppfyllir það ekki öryggiskröfur ESB nema að hluta til. Einbreiðu brýrnar og lélegt malbik um allt land eru okkur til skammar enda vantar hundruð milljarða króna í nauðsynlegar innviðaframkvæmdir sem eru loksins hafnar.
Þeir spyrja oft um framræsluskurðina sem skera landið þvert og endilangt. Í þeirra augum eru þetta umhverfisspjöll af verstu gerð. Skurðirnir eru 32.377 þúsund kílómetrar að lengd en aðeins um 15% þeirra eru nýttir í landbúnaði. Loksins er byrjað að moka í skurðina!
Í fjórða lagi má nefna skort á salernisaðstöðu sem mikið er kvartað undan, sérstaklega á fáförnum stöðum.
Ísland er undraland!
Að ofansögðu er augljóst að landið okkar er einstakt í augum ferðafólksins, og verður það áfram ef vel er haldið á málum.
Það þráir mest að koma á fáfarna staði með einstaka sögu, náttúru og menningu. Það vill upplifa land sem er strjálbýlt og sérstakt.
Víðernið, fámennið og útsýni í allar áttir eru verðmæti sem við verðum að vernda.
Við verðum að laga vegina og brýrnar, fjarlægja draslið sem er meðfram vegunum og bæta salernisaðstöðuna. Þetta er ekki flókið verkefni miðað við það að ferðamennirnir skilja eftir sig allt að tvo milljarða á dag í gjaldeyri.
Á næstu 10 árum koma hingað um 25 milljón ferðamanna sem er jafnstór hópur og farfuglarnir sem koma hingað árlega.
Tökum vel á móti báðum hópunum!
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗