Óska eftir 6.246 milljörðum til að endurnýja kerfið

Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna.

Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna. AFP

Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna, varði í dag ákvörðunina um að stöðva flugtök um öll Bandaríkin í fjórar klukkustundir á föstudag. Þúsundir farþega sátu fastir vegna stöðvunarinnar.

Ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur óskað eftir 50,1 milljarði dala frá þinginu, jafnvirði um 6.246 milljarða íslenskra króna, til að endurnýja innviði flugkerfisins.

Duffy sagði stöðvunina hafa verið nauðsynlega öryggisráðstöfun. Enn liggur þó ekki fyrir hvað nákvæmlega olli tæknibiluninni sem varð til þess að flugtök voru stöðvuð.

„Við Bryan biðjumst ekki afsökunar á því að hafa lokað loftrýminu,“ sagði Duffy við blaðamenn í þinghúsinu. Hann vísaði þar til Bryans Bedfords, forstjóra bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA).

Duffy sagði betra að taka á sig röskun á flugi en að hætta á annað slys á borð við árekstur farþegaþotu og herþyrlu í grennd við Washington í janúar 2025. Þá fórust 67 manns. Duffy hitti aðstandendur þeirra sem fórust þegar hann og Bedford komu í þinghúsið í dag til að kynna beiðnina um neyðarfjárveitingu fyrir öldungadeildarþingmönnum Repúblikanaflokksins.

Vilja byggja eða endurbæta allt að 140 flugturna

Beiðnin var lögð fram formlega í dag í bréfi til þingmanna sem fara með fjárveitingar. Ríkisstjórnin óskar eftir 10,1 milljarði dala, um 1.259 milljörðum króna, til að endurnýja tæknibúnað flugumferðarstjórnar, þar á meðal fjarskiptakerfi og búnað til að stýra umferð loftfara.

Að auki óskar stjórnin eftir 10 milljörðum dala, um 1.247 milljörðum króna, í hvern fjögurra liða. Þeir eru endurbætur á innviðum flugvalla, nútímavæðing flugstöðva, bygging fimm nýrra svæðisbundinna miðstöðva flugumferðarstjórnar og bygging eða endurbætur á allt að 140 flugturnum.

Enn óljóst hvað kom biluninni af stað

Stöðvun flugtaka á föstudag var sú lengsta á landsvísu frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001. Aflýsa þurfti þúsundum flugferða og flugfélög áttu í erfiðleikum með að koma flugáætlunum aftur í samt horf dagana á eftir.

Yfirvöld tengdu bilunina í fyrstu við vinnu við að skipta gömlum koparlínum út fyrir ljósleiðara. Bedford sagði í dag að enn væri óljóst hvers vegna uppsetning nýs beinis virtist hafa valdið víðtækum truflunum í fjarskiptakerfinu.

„Við vitum ekki hvað kom biluninni af stað,“ sagði Bedford. Tæknimönnum hefði enn ekki tekist að skýra hvernig stillingar beinisins breyttust þannig að hann sendi gögn með þeim hætti að kerfið truflaðist. Flugmálastjórnin hefði tekið þá beina sem eru til skoðunar úr notkun á meðan rannsóknin stæði yfir.

Duffy sagði bandarísku alríkislögregluna FBI aðstoða við rannsóknina. Bandarískar leyniþjónustustofnanir hefðu þó gefið til kynna að bilunin hefði ekki stafað af netárás.

Deilt um fyrri fjárveitingar

Demókratar hafa gagnrýnt beiðnina harðlega og sakað Duffy um að fara illa með fé sem þegar hefur verið veitt til að endurnýja flugkerfið. Rosa DeLauro, oddviti demókrata í fjárveitinganefnd fulltrúadeildarinnar, sakaði hann um að krefjast „50 milljarða dala í lausnargjald án raunhæfrar áætlunar um framkvæmdir“.

DeLauro og James Clyburn, þingmaður demókrata, sögðu á sunnudag að enn hefði ekki verið varið 9,1 milljarði dala af fyrri fjárveitingum, jafnvirði um 1.134 milljarða króna. Samgönguráðuneytið sagði að allri fjárveitingu þingsins frá því í fyrra, 12,5 milljörðum dala eða um 1.558 milljörðum króna, hefði þegar verið úthlutað til verkefna sem áætlað væri að ljúka fyrir árslok 2028.

Duffy varði framgang endurnýjunarinnar og sagði að á einu ári hefði verið skipt yfir í nýja tækni í meira en helmingi gamla fjarskiptakerfisins. Á fjórum árunum þar á undan hefði samsvarandi hlutfall verið 19 prósent. Hann sagðist hafa tekið við úr sér gengnu kerfi og ítrekað bent þingmönnum á að mun meira fé þyrfti til að endurnýja það.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅