Frost nálgaðist 20 gráður við Mývatn
Innlent | mbl | 17.11.2026 | 23:43
Kaldast varð á Mývatni, þar sem 19,5 gráða frost mældist í dag eftir fimbulkulda gærdagsins. Ljósmynd/Birkir Fanndal
Víða varð nístingsfrost á landinu í dag, þó hlýnað hefði örlítið frá því í gær. Kaldast var sem áður í innsveitum norðaustanlands, en hiti var í kringum frostmark við suðurströndina.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar.
Kaldast varð á Mývatni, þar sem 19,5 gráða frost mældist í dag eftir fimbulkulda gærdagsins.
Eilítið sunnar, að Svartárkoti, mældist 18,4° frost og að Gauksmýri í Húnaþingi vestra varð kaldast -17,4 gráður.
Spáð er að hlýni allhressilega á morgun hið nyrðra og hiti verði um og yfir -10°.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗